Land Rover mun gefa sérsmíðaða Defender-jeppa til sjálfboðaliðasamtaka
- Fyrirtækið leitar að samtökum í sjö flokkum
Svo virðist sem Ford muni ekki vera eini bílaframleiðandinn sem mun gefa samtökum sem verðskulda slíkt torfærubíla.
Land Rover hefur tilkynnt um „Defender Above and Beyond Service Awards“ verðlaunin, þar sem það mun afhenda sjö sérsmíðaða jeppa til samtaka sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni.
Gefa í sjö flokkum
Það eru sjö flokkar samtaka sem Land Rover er að leita til að til að gefa Defebder-jeppa. Fyrstu tvö sem eru til skoðunar eru leitar- og björgunarsamtök og náttúruverndarhópar við strendur og haf.
Senda inn tillögur
Til að kom til greina til getur einstaklingur eða hópurinn sjálfur sent inn þriggja mínútna myndband um það sem hópurinn gerir, hvernig hann hjálpar samfélaginu og hvernig Defender-jeppinn myndi hjálpa þeim í því starfi. Dómnefnd mun ákveða úrslitin sem myndbönd þeirra verða síðan sett á vefsíðu Land Rover svo að fólk geti kosið um sigurvegara.
Tilnefningar í þremur áföngum
Fyrirtækið tekur tilnefningar í fyrstu tvo flokkana núna til 7. apríl. Næsta tilnefningartímabil verður frá 3. maí til 1. júní og verður fyrir dýravelferð og hópa viðbragðsaðila. Lokahópur samtaka sem tilnefndir verða hópar umhverfissinna, hópar sem eru að endurbæta umhverfið og hópar sem sinna slökkvistörfum. Gluggi þeirra fyrir skil verður 28. júní til 27. júlí.
Aðrar umfjallanir
Suzuki ver að kynna nýjan bíl í sínu framboði, Suzuki Swace sem er þeirra útgáfa af sams konar bíl, Toyota Corolla. Þetta er annar bíllinn frá Suzuki sem byggir á...
„Mér finnst óhugguleg tilhugsunin um að einhver vitfirringur gæti skotið mig niður,“ skrifaði stofnandi og forstjóri Tesla, Elon Musk í skilaboðum til ungs manns. Ungi maðurinn, sem er nemandi á fyrsta ári í háskóla, er nú í essinu sínu eftir að hafa gert opinber samskipti sín við Musk
Þegar það varð ljóst að Volvo myndi koma með nýja rafmagnaða útgáfu af XC90-jeppanum, upphófust miklar vangaveltu um það hvort bíllinn myndi bara nafnið „Embla“ sem var heiti fyrstu konunnar í norrænni goðafræði, en sumir sögðu að „bókstafa + tölukerfið“ myndi halda áfram.
Nú er alveg að koma að því að nýjasta útgáfan af Corolla verði fáanleg en það er Corolla Cross Hybrid. Bíllinn verður frumsýndur í næsta mánuði og eru eflaust margir áhugasamir um stærð og verð á þessu nýjasta trompi.