Fjórhjóladrifinn, langdrægur, rafmagnsjeppi frá Volvo
Brimborg hefur hafið sölu á netinu á Volvo XC40 Recharge, nýjum, sjálfskiptum, fjórhjóladrifnum jeppa sem gengur 100% fyrir hreinu rafmagni.
Volvo XC40 Recharge er yfir 400 hestöfl, aðeins 4,9 sekúndur í 100 km hraða og með drægni á hreinu rafmagni allt að 418 km skv.
WLTP mælingu. Snögg hraðhleðslan kemur 78 kWh tómri drifrafhlöðu í 80% hleðslu eða 334 km drægni á aðeins 40 mínútum.
Care By Volvo í fyrsta sinn á Íslandi
Með nýja Volvo rafmagnsjeppanum kynnir Brimborg í fyrsta sinn á Íslandi Care By Volvo sem tryggir áhyggjulaus kaup, notkun og rekstur.
Sé langtímaleiga valin er Care By Volvo einnig innfalið en að auki eru vetrardekk og umfelgun innifalin í leiguverði.
Volvo öryggi aldrei verið meira
Eins og með aðra Volvo bíla er öryggi ökumanns, farþega og annarra vegfarenda í hávegum haft og hafa Volvo bílar aldrei verið öruggari.
Framúrskarandi tækni með Android Auto stýrikerfi
Volvo XC40 Recharge er tæknilega framúrskarandi með 12,3“ skjá með einstöku Android Auto stýrikerfi sem m.a. inniheldur Google Assistant, Google Maps og Google Play, Apple Car Play og Android Auto þráðlausa speglun, Volvo appi og sjálfvirka netuppfærslu hugbúnaðar (OTA).
Ríkulegur Nordic staðalbúnaður fyrir kalt loftslag
Volvo XC40 Recharge rafmagnsjeppinn býðst í tveimur útfærslum, Plus og Pro, báðar ríkulega búnar og sérstaklega aðlagaðar að köldu loftslagi.
Þar má finna upphitanlegt leðurstýri, upphitanleg framsæti, varmadælu, forhitara sem er fjarstýrður með appi eða á skjá og jafnvel Volvo merkið í grillinu er upphitað.
Pro útfærslan kemur aukalega með Panorama glerþaki með sóllúgu, Harman Kardon hljómtækjum, rafdrifnum sætastillingum, LED aðalljós með beygjustýringu og 360 gráðu myndavél.
Bein kaup, græn fjármögnun eða langtímaleiga. Uppítaka á eldri bíl
Volvo XC40 Recharge kostar frá 8.090.000 kr. með Care By Volvo í beinum kaupum og býður Brimborg margvíslega kosti í hagstæðri grænni fjármögnun.
Nú til sölu á netinu
Volvo XC40 Recharge rafmagnsjeppinn er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar á www.brimborg.is. Þar er hægt að velja um úrval bíla á leið til landsins í fjölmörgum litum.
Þegar draumabíllinn er fundinn er hægt með einum netsmelli að fá samband við söluráðgjafa, skipuleggja reynsluakstur, ganga frá kaupum eða leigu og uppítöku á eldri bíl.
Aðrar umfjallanir
Morgan hefur kynnt sérstaka útgáfu af 3ja hjóla bílnum sínum til að marka lok framleiðsluferils bílsins. Hann er kallaður P101, sem er tilvísun...
Nóg pláss fyrir alla fjölskylduna þó lagt sé upp í langferð, segir í auglýsingu frá Bíladeild Sambandsins árið 1966...
Lóðin er í heild um 23 þúsund fermetrar að stærð og er hún sérhönnuð með fleiri en eitt bílasölufyrirtæki með umfangsmikla starfsemi í huga...
Þau ykkar sem fylgjast með Formúlu 1 vita að liðsstjórinn Toto Wolff getur sannarlega reynst allt annað en lamb að leika við - jafnvel þótt maður hafi bara séð hann á skjánum. Þetta er ákveðinn karl! Hér ekur hann Ineos Grenadier og tekur aðeins á bílnum.