Volvo XC40 rafmagnsjeppinn kominn í Brimborg
Brimborg hóf sölu á netinu á Volvo XC40 rafmagnsjeppanum í byrjun júní og nú eru fyrstu bílar til sýnis og reynsluaksturs komnir til Brimborgar, bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Kraftmikill og langdrægur rafmangsjeppi með góða veghæð
Volvo XC40 Recharge er sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn jeppi sem gengur 100% fyrir hreinu rafmagni. Hann er yfir 400 hestöfl, togar 660 Nm, aðeins 4,9 sekúndur í 100 km hraða og með drægni á hreinu rafmagni allt að 418 km skv. WLTP mælingu.
Snögg hraðhleðslan kemur 78 kWh tómri drifrafhlöðu í 80% hleðslu eða 334 km drægni á aðeins 40 mínútum.
Volvo XC40 rafmagnsjeppinn er einstakur, fjórhjóladrifinn, ferðabíll. Frábær sæti sem fara vel með ökumann og farþega er einkennismerki Volvo ásamt því að farangursrými eru tvö, eitt að aftan og annað að framan.
Ríkulegur Nordic staðalbúnaður fyrir kalt loftslag
Volvo XC40 Recharge rafmagnsjeppinn býðst í tveimur útfærslum, Plus og Pro, báðar ríkulega búnar og sérstaklega aðlagaðar að köldu loftslagi. Þar má finna upphitanlegt leðurstýri, upphitanleg framsæti, varmadælu, forhitara sem er fjarstýrður með appi eða á skjá og jafnvel Volvo merkið í grillinu er upphitað.
Framúrskarandi tækni með Android Auto stýrikerfi
Volvo XC40 Recharge er tæknilega framúrskarandi með 12,3“ skjá með einstöku Android Auto stýrikerfi sem m.a. inniheldur Google Assistant, Google Maps og Google Play, Apple Car Play og Android Auto þráðlausa speglun, Volvo appi og sjálfvirka netuppfærslu hugbúnaðar (OTA).
Volvo öryggi aldrei verið meira
Eins og með aðra Volvo bíla er öryggi ökumanns, farþega og annarra vegfarenda í hávegum haft og hafa Volvo bílar aldrei verið öruggari. Öryggiskerfi eins og ABS hemlakerfi, SIPS hliðarárekstrarvörn, WHIPS bakhnykksvörn, veglínuskynjari, borgaröryggi (City Safety), BLIS myndavél fyrir hliðarumferð, Cross-Traffic öryggiskerfi og Pilot Assist hjálparstýring tryggir fimm stjörnu öryggi í umferðinni.
Volvo Care í fyrsta sinn á Íslandi
Með nýja Volvo rafmagnsjeppanum kynnir Brimborg í fyrsta sinn á Íslandi Volvo Care tilboð sem tryggir áhyggjulaus kaup, notkun og rekstur. Í því felst að innifalið í kaupverði er:
Bein kaup, græn fjármögnun eða langtímaleiga. Uppítaka á eldri bíl
Volvo XC40 Recharge kostar frá 8.090.000 kr. með Volvo Care tilboði í beinum kaupum og býður Brimborg margvíslega kosti í hagstæðri grænni fjármögnun.
Einnig býður Brimborg langtímaleigu með Care tilboði í 36 mánuði með mánaðarlegum greiðslum.
Í öllum tilvikum býður Brimborg að kaupverð eldri bíls renni upp í kaupverð nýja bílsins eða að það sé greitt út ef um langtímaleigu er að ræða.
Nú til sölu á netinu og til afhendingar í júlí
Volvo XC40 Recharge rafmagnsjeppinn er nú þegar til sölu á netinu í Vefsýningarsal Brimborgar. Þar er hægt að velja um úrval bíla á leið til landsins í fjölmörgum litum.
Þegar draumabíllinn er fundinn er hægt með einum netsmelli að fá samband við söluráðgjafa, skipuleggja reynsluakstur, ganga frá kaupum eða leigu og uppítöku á eldri bíl.
Fyrstu bílar til afhendingar til viðskiptavina koma í byrjun júlí og síðan í hverri viku eftir það.
Aðrar umfjallanir
Volkswagen Golf náði aftur sæti sem mest seldi bíll Evrópu í júlí eftir að bíllinn missti fyrsta sæti í tvo mánuði á undan til Renault Clio...
Þetta títan rafreiðhjól býður upp á fína sértækni og vegur aðeins 9,9 kíló.
Maður skyldi nú ætla að næsta ómögulegt væri að tveir bílar væru fyrir tilviljun með sama bílnúmerið. Hvað þá fjórir bílar með sama bílnúmerið! Í dag eru slík mistök við skráningu svo gott sem ómöguleg, en þetta gerðist nú endrum og sinnum hér áður fyrr.
Fyrsti framleiðslubíllinn frá Rimac er loksins tilbúinn og kominn á götuna.