Viltu láta smíða bílinn fyrir þig!
Á meðan Jagúar reynir að finna sína fjöl á markaðnum með þróun næstu kynslóðar rafbíla standa fjölmörg bílagallerý í því að endursmíða bíla fyrri tíma. E-Type UK er eitt af þessum verkstæðum sem endursmíðar gamla bíla og blandar nýrri tækni saman við og býr til svokallaða „restomod“ bíla.
Umræddur bíll er byggður á Jaguar E-Type sem kom fyrst á markað árið 1961. Þetta er Series 3 bíll sem notaður er sem útgangspunktur fyrir þessa endurgerð.
Þegar uppi er staðið er enginn hlutur ósnertur í þessum bíl.
Aflið aukið
Hvert verkefni hefst á að redda gömlum bíl til að byggja grunninn á. Eftir að hafa tekið undirvagninn í nefið og styrkt hann er V12 (tólf strokka) vélin tekin fyrir.
Stimpilhólfin eru boruð út og stækkuð um 800 rúmsentimetra þannig að rúmtak vélar verður 6.1 líter. Með rafstýrðri eldsneytis innspýtingu og sérsmíðuðu útblásturskerfi gefur vélin um 400 hestöfl.
Við vélina er síðan pöruð fimm gíra handskipting og aflið er síðan sent út í afturhjólin. Fjögurra arma öflugar bremsur tryggja hnökralausa stöðvun.
Nýjasta tækni
Þegar vélin hefur fengið sína yfirhalningu snúa menn sér að undirvagninum. Þar er nánast ekkert í bílnum sem E-Type bíllinn var búinn í upphafi. Komið hefur verið fyrir stillanlegum höggdeyfum og undir bílnum eru örlítið stærri teinafelgur til að nýju bremsurnar komist vel fyrir.
Að utan léku menn sér svo aðeins með stuðara, grill og sérmerktu bílinn með lógói sínu. LED ljós eru að sjálfsögðu staðalbúnaður og ætluð til að færa lúkkið meira til nútímans.
Að öðru leyti eru breytingar að utan frekar lúmskar og ekki svo auðvelt að sjá í fljótu bragði. Innanrými bílsins eru engin takmörk sett – þar ræður ferðinni fjárhagur kaupandans – allt er leyfilegt.
Hægt er að panta mismunandi leðuráklæði, upphituð sæti, LED lýsingu, start/stop hnapp, blátannarbúnað og surround hljóðkerfi svo eitthvað sé nefnt.
Það er hægt að panta bíl
Áætlað er að endursmíðin taki allt að fjögur þúsund vinnustundir (4.000 klst.) sem skýrir að hluta til verðlagninguna en byrjunarverðið er um 56 milljónir – og það er án fornbílsins sem notaður er sem grunnur. Í því samhengi má nefna að fyrir þessa upphæð er hægt að kaupa tvo Lamborghini Huracán Evo og bílskúr til að geyma hann í.
Byggt á grein Autoblog.
Aðrar umfjallanir
„Spurðu Max að hverju sem er,“ segir í Twitterfærslu Red Bull liðsins í Formúlu 1. Og inn hrúgast spurningarnar. Nú er tækifæri til að spyrja heimsmeistarann um hvað sem er; allt frá því hvort hann borði súrar gúrkur til þess hvort hann stilli bremsurnar oft í keppni.
Alrafmagnaður Fiat 500e verður frumsýndur í Bandaríkjunum á bílasýningunni í Los Angeles á dögunum
Volkswagen fagnar kynningu á Obi-Wan Kenobi, nýju Star Wars seríunni, með einstöku pari af ID.Buzz rafbílum....
Það er sannarlega ekki vanþörf á að hreinsa jarðveginn af ósprungnum sprengjum. Þær liggja nefnilega víða. Það er vel við hæfi að nota Ineos Grenadier til að ferja sprengjuleitarfólk um torfarna slóða þar sem t.d. handsprengjur sem finnast eru gerðar óvirkar.