Í síðustu viku þurrkuðum við rykið af gömlum og góðum bílaatriðum í íslenskum kvikmyndum og íslensku sjónvarpsefni. Það var svo hressandi að finna karaktera á borð við Núma í gömlu Spaugstofunni að það væri synd að láta þar við sitja.
Í það skiptið tók undirrituð fyrir myndbrot með Núma, sem er karakter úr smiðju Arnar Árnasonar, frá árinu 1995/1996 og var hann að kaupa sér bíl. Verst hve myndgæðin voru lítil í þeirri „klippu“. En skemmtilegt var það engu að síður!
Hér er hins vegar hinn fámáli Númi í ökukennslu og er í fókus og allt! Þetta er úr ´92 á Stöðinni og atriðið um 50 sekúndur, sem er einmitt passlegur tími til að koma manni í ljómandi gott skap. Númi, „peppaður að vanda“, gjörið svo vel!
Aðrar umfjallanir
BL við Sævarhöfða kynnir á laugardag milli kl. 12 og 16, hinn nýja tengiltvinnbíl, EHS Plug-in Hybrid, frá MG sem er rúmgóður jepplingur í stærðarflokki...
Næsta kynslóð Fiat Tipo mun skipta úr hlaðbaki yfir í crossover í fjölskyldustærð...
Bílar sem voru látnir hverfa ofan í vatnsþró nokkra skammt frá Glasgow á tíunda áratug síðustu aldar, hafa loks verið fjarlægðir. Mörgum til ánægju er þessi fúli pollur nú minna fúll en áður og óþefurinn ekki eins stækur.
BMW Group mun koma fram með fjóra rafmagnsbíla á næstu tveimur árum þegar bílaframleiðandinn flýtir...