- Daimler leitar eftir verðmati á hlutabréfamarkaði sem líkist því sem Tesla hefur náð, en það hyggst Daimler gera með því að breyta nafninu í Mercedes-Benz
Hér einu sinni héldu flestir að Mercedes-Benz héti einfaldlega Mercedes-Benz - en heitir í raun Daimler en verður að Mercedes-Benz núna um mánaðarmótin!
Forstjóri Daimler, Ola Kallenius, sækist eftir hærra verðmati fyrir lúxusbílaframleiðandann þar sem framleiðandinn færir sig meira yfir í rafbíla sem eru hlaðnir stafrænum græjum.
Eftir að Daimler aðskildi framleiðslu vörubíla frá meginrekstrinum í desember, mun bílaframleiðandinn í framhaldinu breyta nafni sínu í Mercedes-Benz þann 1. febrúar, til að gefa betur til kynna sjálfstæða einingu sem tekur á umbreytingum iðnaðarins.
Mercedes stefnir á að vera með rafhlöðuknúnar gerðir í öllum sínum flokkum á þessu ári til að keppa við Tesla.
Framleiðsla á Mercedes-AMG EQS 53 4MATIC+ í verksmiðju bílaframleiðandans í Sindelfingen, Þýskalandi.
„Við höfum raunverulega möguleika á að hækka margfeldið,“ sagði Kallenius við fréttamenn á föstudaginn, án þess að nefna sérstakt verðmat á fyrirtækinu, sem hefur hækkað um 40 prósent að verðmæti á síðustu 12 mánuðum og er núvirði 74 milljarðar evra.
Kallenius benti á hærra verðmat sem fylgir öðrum lúxus- og tæknihlutum. „Ef við getum aukið sjóðstreymi og margfeldi okkar, þá eru miklir möguleikar í Mercedes-Benz hlutabréfunum,“ sagði hann.
Hefðbundnir bílaframleiðendur, þar á meðal Volkswagen, eiga í erfiðleikum með að lyfta sér upp, jafnvel þó þeir séu farnir að framleiða rafbíla. Skortur á lánsfé frá fjármagnsmörkuðum setur bílaframleiðendum skorður að keppa við nýja keppinauta eins og Apple og Tesla með yfirburða fjárhagslegan bakhjarl.
Að elta Tesla
„Fjárfestar gætu byrjað að líta á Mercedes sem framleiðanda á borð við Lucid Motors eða Tesla og gefið fyrirtækinu margfeldi rafbíla,“ sagði evrópskur bílasérfræðingur hjá RBC Capital Markets Tom Narayan. „En Lucid og Tesla byrjuðu á 100 prósent rafbílum. Fyrir Mercedes þarf að breyta núverandi viðskiptum á bílum með hefðbundna brunavél yfir í rafbíla. Það gæti verið takmörkun á því hversu langt margfeldið gæti náð á næstunni."
Kallenius er að endurskipuleggja Mercedes til að einbeita sér að hágæða gerðum með sjálfvirkum akstri sem miða að því að auka tekjur, jafnvel þó fyrirtækið fjárfesti milljarða í nýrri tækni.
Aðal Mercedes-Benz deild Daimler mátti þola víðtækar framleiðslutruflanir á þriðja ársfjórðungi 2021 vegna skorts á íhlutum og tölvukubbum.
Meira en heil öld á framleiðslu fólksbíla og vörubíla saman
Með því að Daimler skipti rekstrinum og setti framleiðslu vörubíla í sérstakt fyrirtæki lauk um einnar aldar framleiðslu fyrirtækjanna undir sama þaki.
(Automotive News Europe / Reuters / Bloomberg)
Aðrar umfjallanir
Það virðist að Rolls-Royce muni kynna fljótlega um langþráð hreint rafknúið ökutæki sitt, byggt á tilkynningu sem gefin var út í dag, mánudag.
VW mun fjárfesta í að uppfæra MEB pallinn með lengri drægni og hraðari hleðslu til að mæta amkeppni
Þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk hélt Willys-Overland fast í kjörorð framleiðslunnar á stríðsárunum, „sólin sest aldrei á jeppa...
Rafdrifið fjallahjól frá Quietkat, sem er framleitt í samvinnu við Jeep.