Nýtt ár, nýr bíll, nýtt keppnistímabil. Þetta er bara spennandi! Haas-liðið undir stjórn míns uppáhalds orðljóta karls, liðsstjórans Guenthers Steiner, skaut öllum öðrum keppnisliðunum ref fyrir rass og var fyrst allra til að kynna nýjan keppnisbíl.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644003605_5436014238495173624_395378300688610.jpg)
Húmorinn á sínum stað og orðaforðinn sömuleiðis hjá hliðarsjálfi Steiners, samkvæmt mér fróðari mönnum, en þetta hliðarsjálf er býsna hnyttið. Enda þýðir útlenska orðið „banter“ (@BanterSteiner) að „gantast“ eða einfaldlega „fíflalæti“.
Bíllinn, VF-22 lítur, vel út og vonum bara að hann verði ekki tilefni fúkyrðaflaums frá meistara Steiner.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644000007_8063453620590691531_391779854837886.jpg)
Simone Resta ásamt þeim Ayao Komatsu og Guenther Steiner (honum sjálfum en ekki hliðarsjálfinu Banter sem á heima á Twitter). Mynd/Haas
Tæknistjóri liðsins Simone Resta útskýrir í allmörgum orðum tæknilegar áskoranir sem þurti að mæta við smíði bílsins og lesa má hér en ljóst er að nýr bíll var heldur betur það sem þetta lið þurfti á að halda því sá gamli var ekki alveg málið – enda ekkert sniðugt að keppa í Formúlu 1 á tækjum sem helst eiga heima á Þjóðminjasafninu.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644000008_7423488827752055697_391780979239621.jpg)
Mynd/Twitter@HaasF1Team
Hvað um það! Áður en hér skrifast einhver dómsdagsþvæla er rétt að líta á myndir (tölvugerðar en myndir engu að síður) af bílnum,
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644000009_5207071454404661721_391782518060042.jpg)
Mynd/Twitter@HaasF1Team
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644000010_7964301602249575938_391783605214704.jpg)
Mynd/Twitter@HaasF1Team
![image](https://img.bilaskra.is/images/1644000011_5365473984749948078_391784660714621.jpg)
Hér er gamli tertuspaðinn, bara svona til samanburðar. Mynd/Twitter@HaasF1Team
Svo gætu margir haft áhuga á speki spekinganna hjá The Race sem áðan birtu myndband undir yfirskriftinni: Hvað frumsýning Haas segir okkur um keppnisbílana 2022.
Tengdar greinar:
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1653028805_1166737920824797945_6654710283338810.jpg)
Muna lesendur eftir því úr ökunáminu þegar bakka átti í stæði? Nei, það er kannski ekkert til að muna sérstaklega eftir. Nema maður hafi gert það á svo stórbrotinn hátt að heimurinn frétti af því.
![](https://img.bilaskra.is/images/1664397614_1776785777701158892_18023519234672634.jpg)
28 september 2022. Polestar (Nasdaq: PSNY) frumsýnir sinn fyrsta jeppa, Polestar 3, á frumsýningarviðburði þann 12. október 2022 í Kaupmannahöfn í Danmörku...
![](https://img.bilaskra.is/images/1644334809_2046942395351510069_726581916155496.jpg)
Volvo ætlar að skipta yfir í „megacasting“ tækni Tesla til að bæta drægni og hleðsluhraða í næstu kynslóð rafbíla sem smíðaðir verða í stærstu og elstu verksmiðju Volvo.
![](https://img.bilaskra.is/images/1612438587_6204716077629124763_9743524000.jpg)
Þegar sölutölur nýrra bíla eru skoðaðar núna að loknum fyrsta mánuði ársins má sjá að sala á nýjum bílum fer hægt af stað, miðað við sama tímabil í fyrra, árið 2020...