Þeir eru kaldir karlar á kappakstursbrautinni en hversu kaldir eru þeir þegar alvöru ísbað er annars vegar?
Það er rétt að geta þess að hér er um fremsta akstursíþróttafólk heims að ræða. Bæði konur og karlar eiga í hlut. Þetta er skemmtilegt „á bak við tjöldin“ myndband frá Race of Champions sem fram fór í Norður-Svíþjóð í byrjun mánaðarins.

Finninn Mika Häkkinen leikur á alls oddi og stemningin er hrikalega góð. Best er þó að sjá viðbrögð og klaufaskap fólksins í kringum ísbaðið!

Þessu nátengt: 

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is