Hertz og Polestar kynna stefnumótandi alþjóðlegt samstarf til að flýta fyrir innleiðingu rafbíla
Hertz kaupir allt að 65.000 rafbíla á fimm árum
ESTERO, FLÓRÍDA og GAUTABORG 4. apríl, 2022 – Hertz (NASDAQ: HTZ) og Polestar, sænskur framleiðandi hágæða rafbíla, tilkynntu í dag um nýtt alþjóðlegt samstarf sem felur í sér kaup á allt að 65.000 rafknúnum ökutækjum á næstu fimm árum. Gert er ráð fyrir að afhendingar hefjist vorið 2022 í Evrópu og seint á árinu 2022 í Norður-Ameríku og Ástralíu.
Fyrir Hertz er samstarfið hluti af stefnu fyrirtækisins um að vera leiðandi í rafvæðingu, deilihagkerfinu og í stafrænni upplifun viðskiptavina. Samstarfið við Polestar byggir á tilkynningu Hertz í október síðastliðnum um að bjóða viðskiptavinum sínum stærsta rafbílaleiguflota í Norður-Ameríku og einn þann stærsta í heiminum.
Auk þess að gera flotann aðgengilegan fyrirtækjaviðskiptavinum og ferðamönnum, er Hertz að útfæra rafbíla til deilibílanotkunar sem leið til að flýta enn frekar fyrir rafvæðingu.
„Við erum spennt að eiga samstarf við Polestar og hlökkum til að kynna hágæða rafbíla þeirra til útleigu og sem deilibíla,“ sagði Stephen Scherr, forstjóri Hertz. „Samstarf dagsins í dag við Polestar byggir enn frekar á metnaði okkar um að verða leiðandi þátttakandi í nútíma vistkerfi fyrir hreyfanleika og gera það sem umhverfisvænt fyrirtæki.
Polestar greindi frá því að það næstum þrefaldaði magn seldra bíla árið 2021 og gerir ráð fyrir meira en tvöföldun magns aftur á þessu ári.
Polestar gerir ráð fyrir að árlegur fjöldi seldra bíla verði kominn í 290.000 í árslok 2025. Polestar hefur áður kynnt áform um skráningu á Nasdaq New York í fyrirhugaðri sameiningu við Gores Guggenheim, Inc. (Nasdaq: GGPI, GGPIW og GGPIU), sem er gert ráð fyrir að ljúki á öðrum ársfjórðungi 2022.
„Við erum ánægð með að Hertz hafi valið Polestar sem stefnumótandi samstarfsaðila á leið sinni til rafvæðingar.
Samstarf við brautryðjanda á heimsvísu eins og Hertz mun færa breiðari markhóp þá mögnuðu upplifun að keyra rafbíl og fullnægja fjölbreyttum kröfum sameiginlegra viðskiptavina okkar um hreyfanleika til skemmri og lengri tíma. Fyrir marga þeirra gæti þetta verið í fyrsta skipti sem þeir keyra rafbíl og það verður Polestar.
Polestar 2 býður framúrstefnulega skandinavíska hönnun og leiðandi bíltækni. Polestar 2 inniheldur fyrsta upplýsinga- og afþreyingarkerfi heimsins knúið af Android Automotive OS með Google innbyggt fyrir hágæða rafbíla, í ökumannsmiðuðum, kraftmiklum aksturspakka.
Aðrar umfjallanir
Það gekk ekki bara illa að sprengja Land Cruiser 300 í klessu heldur einfaldlega tókst það ekki. 15 kíló af TNT, 10 handsprengjur, 2 jarðsprengjur og 780 skothrinur úr hinum ýmsu frethólkum dugðu ekki til að lúskra almennilega á brynvörðum Cruisernum.
Renault mun bjóða rafmagns rafmagnsútgáfu sína af Kangoo sendibíl með viðbættum vetnisvalkosti fyrir árslok og bæta tækninni við aðra gerð...
Núna þegar ferðamannatíminn stendur sem hæst og Íslendingar flykkjast um landið sem aldrei fyrr er ekki úr vegi að kíkja á þá staði sem bílamenn ættu...
Volkswagen kynnti í gær áætlanir sínar um að breyta samstæðunni í hugbúnaðardrifið ferðalausna fyrirtæki með áherslu á öflugu vörumerkin sín...