Það er komið vor í Kauptúni
Hlýir vorvindar munu bása í Kauptúninu á morgun, laugardag inn 23. apríl, þegar úrval nýrra bíla verður sýnt hjá Toyota og Lexus. Sýningin verður opin frá kl. 12 – 16 og þar geta gestir séð nýjustu bílana og fengið innsýn í það sem fram undan er í rafmagnsbílum og tengitvinnbílum.
Helstu nýjungar á sýningunni hjá Toyota eru þessar:
- Sýningareintök verða á staðnum af Corolla Cross sem er væntanleg til landsins síðar á árinu.
- Ný kynslóð Aygo X verður á staðnum en þessum borgarbíl eru nú flestir vegir færir með aukinni veghæð. Sýningarbílar verða í sal og reynsluakstur verður í boði.
- bZ4X, fyrsti rafmagnsbíllinn frá Toyota er væntanlegur til landsins í sumar og sérfræðingar Toyota verða með allar upplýsingar um bílinn á sýningunni.
Hjá Lexus ber þetta hæst:
- Reynsluakstur verður í boði á Lexus UX 300e, fyrsta rafmagnsbílnum frá Lexus.
- Einnig verður reynsluakstur í boði á nýrri kynslóð Lexus NX 450h+ tengitvinnbílnum.
- Rafmagnsbíllinn Lexus RZ 450e er væntanlegur til landsins og opnað hefur verið fyrir forpantanir og geta gestir fræðst um bílinn.
Lexus og Toyota lofa skemmtilegri sýningu á laugardag og hvetja alla þá sem geta til að koma í Kauptúnið.
Aðrar umfjallanir
Væntanlegur millistærðarjeppi SsangYong hefur fengið nafnið „Torres“. Bíllinn, sem hingað til hefur haft kóðanafnið „J100“, dregur nafn sitt af Torres del Paine þjóðgarðinum í Patagóníu.
Aldrei að þiggja far með ókunnugum en í þetta skipti er það aðeins öðruvísi
IONIQ 6 er byggður á rafmagns-grunni (E-GMP) Hyundai Motor Group og er búinn margskonar háþróaðri tækni og viðskiptavinamiðuðu, rúmgóðu innanrými. Að auki veitir það aukið drægni sem er yfir 610 kílómetrar á einni hleðslu (WLTP-áætlað), sem endurskilgreinir mörk rafhreyfanleika.
Margir hér á landi muna eflaust eftir Hyundai H-1 eða Starex, sem var vinsæll bíll fyrir stórar fjölskyldur, bíll með aldrifi og ágætri veghæð sem...