Litlar vélar, litlir bílar
Bílar með litlum vélum hafa átt vinsældum að fagna á Íslandi. Í fyrri tíð fluttu bílaumboðin inn slíka bíla til að halda niðri verðum á ódýrari týpum. Til dæmis var hægt að kaupa Ford Escort, Nissan Cherry, Daihatsu Charade og Citroen með vélum sem voru undir 1000cc.
Boruðu vélina út
Oft voru menn að bora vélar út til að fá meiri kraft í þær. Þá sá maður í auglýsingum „vél boruð út”.
Stundum voru smáauglýsingar DV á þann veg að bíllinn væri með „upptekinni vél”. Þá var átt við að vélin hafði verið endurgerð.
Stærri bílar með of litlar vélar
Ég þekkti mann sem keypti einn af fyrstu Subaru Legacy bílunum sem komu um 1990. Þeir voru með 1,8 lítra vél sem voru frekar litlar fyrir þannig bíl með sjálfskiptingu. Daginn eftir að hafa tekið við nýjum bíl hjá Ingvari Helgasyni skellti hann sér í umboðið og skilaði bílnum með þeim skilaboðum að hann næði varla að komast yfir gatnamótin á Höfðabakkanum áður en rauða ljósið kviknaði. Hann hlyti bara að vera bilaður „helv… bíllinn”.
Seinna komu Subaru Legacy með 2.0 lítra vélum sem staðalbúnaði og einnig var hægt að fá Subaruinn með 2,2 lítra vél í smá tíma. Outback var síðan með 2,5 lítra vél – og sá komst vel áfram. Fínir bílar.
Við tókum saman smá lista yfir bíla með litlar vélar. Þessir bílar eiga þó reyndar eitt sameiginlegt – þeir eru sjálfir ansi litlir.
Hvað er kúbik?
CC þýðir í raun cubic centimeters eða rúmtak vélar (rúmsentimetrar). Rúmtak vélarinnar, mælt í rúmsentimetrum er í raun stærð stimpilhólfsins. Því stærra hólf, því meira magn lofts og eldsneytis er hægt að pressa í stimpilhólfinu til að framleiða afl.
Citroën Ami 6: 602 cc vél. Þegar 2CV bíllinn kom sá og sigraði var hann búinn 435 cc vél. Ami 6 var aðeins stærri og þyngri þannig að hann fékk pínu stærri vél. Sú var 602 cc. Ami kom til sögunnar árið 1961.
Fiat 126: 594 cc vél. Þessi vél var notuð í fimm ár í þessari gerð bíla eða allt til enda árs 1977.
Fiat 500 Topolino: 569 cc vél. Þennan kölluðu Ítalar Mikka Mús. Hann var framleiddur frá 1936 til 1955. Sá á myndinni er frá árinu 1949.
Suzuki SC100: 539 cc vél. Þriggja sílyndra og framleiddi 28 hestöfl.
Citroën Dyane: 425 cc vél. Þessi er einnig byggður á 2CV bílnum. Dyane var reyndar smíðaður með þessa litlu vél í nokkra mánuði eftir að hann koma á markað árið 1967. Annars var hann með 435 cc. eða 602 cc. vél.
Vespa 400: 393 cc vél. Byggður í Frakklandi af ACMA sem framleiddi Vespu hjólin einnig. Vélin var afturí og farartækinu var rennt út af færibandinu í fyrsta skipti árið 1957. Seldist vel fyrsta árið en framleiðslu var hætt árið 1961.
Suzulight: 359 cc vél. Suzulight var framleiddur af mótorhjóla framleiðandanum Suzuki frá 1955 og allt til 1969. Þá reyndar hafði Suzuki sett á markað Fronte bílinn undir vörumerkinu Suzuki.
Honda T360: 356 cc vél. Þetta er fyrsta farartækið með fjórum hjólum sem Honda framleiðir. Pikkupp sem var framleiddur frá 1963 til 1967. Líklega sá bíll með hvað minnstu fjögurra strokka vél sem nokkurn tímann hefur verið framleidd.
Mazda R360: 356 cc vél. Þessi Mazda kom á markað árið 1960. Vélin var V laga og staðsett afturí. Tveggja sæta kúpubakur sem heillaði.
Subaru 360: 356 cc vél. Þetta urðu vinsælar vélar í japanska smábíla. Frá árinu 1958 og allt til 1971 var 360 bíllinn fáanlegur sem stallbakur, skutbíll og blæjubíll.
Lloyd 300: 293 cc vél. Þýskur bílaframleiðandi og var hluti af Borgward samsteypunni. Þessi bíll var fyrsti bíll þeirra eftir stríð og var með þessari líka flottu vél, loftkældri og dreif bílinn áfram með framdrifi. Vélin gaf hvorki meira né minna en 10 hestöfl.
Lloyd 250: 250 cc vél. Þessi var fáanlegur allt til 1957. Lloyd 250 var 11 hestöfl og lifði ekki leng. Það var kannski ekki svo skrítið. 11 hestöfl eru kannski í það minnsta í þennan kagga.
Goggomobil: 245 cc. Þýska Glas fyrirtækið framleiddi nokkra eigulegar gerðir á sínum tíma, bíla með allt að 3 lítra vélum. Það var áður en fyrirtækið var keypt af BMW. Goggomobil var boðinn í fjölmörgum gerðum og með nokkrum vélarstærðum. Sú minnsta var þessi 245 cc vél.
Heimild: Classic and Sports Cars.
Aðrar umfjallanir
Bílaáhugamenn sem voru hrifnir af Mercedes-Maybach Ultimate Luxury hugmyndabílnum og urðu fyrir vonbrigðum með þá ákvörðun Benz að smíða ekki þann bíl geta nú tekið gleði sína á ný...
Porsche hleypti okkur inn í hugmyndabankann sinn í dag til að skoða ýmsar hugmyndir sem hafa orðið til þar á bæ í áranna rás, en komust síðan ekki í framkvæmd...
Corvettur eru og hafa alltaf verið mjög spennandi. Einkum núna þegar Chevrolet virðist ætla að koma með raf- eða tvinnútgáfu þessa vinsæla bíls.
Bílaframleiðandinn MG afhjúpaði í Lundúnum í gær, þriðjudaginn 22. september, fyrstu ljósmyndirnar af annarri bílgerð sinni sem framleiðandinn hyggst kynna í Evrópu...