Nýr lítill Skoda rafbíll árið 2025
Væntanlegur lítill bíll Skoda mun deila undirvagni með svipuðum rafbílum frá Volkswagen og Cupra
Nýr alrafmagnaður lítill bíll Skoda hefur verið staðfestur með því að Volkswagen sendi frá sér kynningarmyndir af eigin ID-gerð og útgáfu Cupra samhliða rafbíl frá Skoda.
Tækni frá móðurfyrirtækinu VW mun örugglega birtast á bílnum.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1651927215_5439591614415045359_5553120445832416.jpg)
Þó að við getum ekki séð mikið af hönnunarupplýsingunum út frá kynningarmyndinni, benda heildarhlutföllin til þess að þetta verði bíll svipaður að stærð og Fabia.
Þar af leiðandi er líklegt að það noti nýja MEB „Entry“-undirvgninn og ætti að veita væntanlegum Volkswagen ID.1 samkeppni.
Hönnunin lítur út fyrir að vera miklu einfaldari en hjá hinum sportlega Cupra og kantaðri en rúnnað útlit ID-bílanna. Stóru hjólaskálarnar eru næstum ferkantaðar í lögun og það er einföld axlarlína sem liggur frá framljósinu að afturljósinu.
Verðlagning á Skoda rafbílnum í grunngerð gæti lækkað systurbílana frá VW þannig að upphafsverð verði undir 20.000 evrum (um 2,8 milljónir ISK) sem gæti verið mögulegt.
Í annarri færslu á samfélagsmiðlum staðfesti VW einnig að byrjað verði að smíða nýju Sagunto rafbíla rafhlöðuverksmiðjuna á Spáni árið 2023 - þar sem við getum búist við að rafhlöðurnar fyrir þessa nýju litlu rafbíla verði framleiddar.
Miðað við smærri yfirbyggingu gæti þetta samt gefið drægni upp á um 450 km.
Þetta er ekki eini rafknúni Skodann sem tékkneska fyrirtækið hefur verið að kynna undanfarnar vikur. Óljós mynd af alrafmögnuðum Skoda sportjeppa var sýnd í mars 2022 og þó að hún hafi ekki gefið mikið upp getum við gengið út frá því að nýr sportjepplingur sem er minni en Enyaq Skoda er á leiðinni.
(frétt á Auto Express)
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1665866406_8640815475854366981_19492310906008810.jpg)
BMW hönnuðir hyggjast gera miklar breytingar á næstu kynslóð X2 crossover, með hallandi þaki og afturhlera að aftan...
![](https://img.bilaskra.is/images/1660077606_8846915918403905144_13703510954793054.jpg)
Performance Wipers færa úðagjafann yfir á þurrkuarmana, sem setur vatnsbunurnar nær framrúðunni...
![](https://img.bilaskra.is/images/1619811607_3855904444169046582_2551871157657683.jpg)
Næstu sex mánuðina ætlum við að lýsa upplifun okkar á því að aka um á rafmagnsbíl. Markmiðið er að gefa lesendum okkar innsýn í daglegt líf rafbílanotenda...
![](https://img.bilaskra.is/images/1612442754_1881176206271896760_4176093447000.jpg)
Fiat Chrysler Automobiles og PSA Group hafa skrifað undir bindandi samrunasamning í samkomulagi sem...