Hann heitir Greg en kannski betur þekktur sem Mr. Car Sound. Ekki veit maður hvað þessi náungi fær sér í morgunmat en það gæti verið steinolía, nítró eða bensín. Aldrei hef ég heyrt nokkurn mann framkalla bílhljóð eins og fínstillt eðalvél. Foreldrar hans hljóta að vera á dekkjum eða eitthvað magnað!
Greg hinn mikli mótormunnur, gjörið svo vel!
Þessu ekki alveg óskylt:
Aðrar umfjallanir
Hvað gerir maður til að vekja athygli á mikilvægu málefni? Tjah, það segir sig nokkurn veginn sjálft: Maður fer á rallýbíl, mjög gömlum rallýbíl, á Suðurskautslandið. Ekki satt?
Breskir bílar geta, rétt eins og breskur matur, verið óætir. Nei, afsakið öll! Auðvitað átti að standa þarna óútreiknanlegir. Það sama er að segja um farartækin í bresku vísindaskáldskaparþáttunum um Doctor Who. Lítum nánar á The Whomobile.
Fjórhjóladrifsbílar með toppgrind og tjaldi. Nú eru þaktjöld í tísku en hugmyndina má reyndar rekja áratugi aftur í tímann. Á sjötta og sjöunda áratugnum voru...
Brimborg náði einstökum samningum við Ford í Bandaríkjunum og því koma 30 eintök af Ford Bronco til landsins í lok nóvember næstkomandi, langt á undan...