Fjölbreyttar Lödur
Lada voru einu sinni hörkubílar. Hvernig þeir eru í dag veit maður ekki en þeir eru ennþá framleiddir og seldir til ýmissa landa.
Suðrænn fjölskyldubíll og harður vinnuþjarkur
Ladan kom til vegna samstarfs Fiat og Sovétstjórnarinnar á kaldastríðsárunum.
Sovétmenn hófu framleiðslu á Lödunni upp úr 1970 og var þá búið að styrkja bílinn og gera þannig úr garði að hann þyldi holótta og slæma vegi Sovétríkjanna.
Þá hét kagginn VAZ-2107 – og geri menn svo grín að nafngiftum nútímans.
Seldist í skipsförmum
Bifreiðar og landbúnaðarvélar höfðu umboð fyrir Lödu en í auglýsingu frá 1984 segir: „Lada bílar hafa sannað kosti sína hér á landi sem sterkir, öruggir, gangvissir, ódýrir í innkaupi, með lítið viðhald og ódýra varahluti – og ekki síst fyrir hátt endursöluverð.“
Þeir sem keyptu Lödu voru einfaldlega þeir sem vildu bíl sem entist og spáðu síður í útlitið.
Þessi greinarskrif komu nú reyndar til vegna mynda sem undirritaður rakst á við leit að bílum á vefnum. Við stelumst til að sýna ykkur þær hér fyrir neðan.
Fleiri greinar um Lödur:
Aðrar umfjallanir
Fjórða sérsniðna Polestar gerðin verður meðalstór sportjepplingur, í stærð fyrir neðan Polestar 3...
Það var ekki vandalaust að vera með flotta hjókoppa á bílum á Íslandi hér áður fyrr, því vondir vegir með holum og skorningum urðu til þess að kopparnir vildu fljúga af, og oft mátti sjá glampa á gljáfægða hjólkoppa í vegaköntum þegar farið var í sunnudagsbíltúrinn.
Þetta er jú ein leið til að losna við ryðið. Er þetta sniðugt eða ekki? Áhugavert væri að vita hvort lesendur hafi reynslu eða skoðun á svona löguðu. Þ.e. sýrubaði á bílnum en ekki sjálfum sér (að sjálfsögðu!). Hvað segið þið? Aðferð úr forneskju?
Sebastian Vettel, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1 keppir ekki í Rússlandi vegna þróunar mála milli Rússkands og Úkraínu. Fleiri hafa tekið sama pól í hæðina. Ástandið hefur áhrif víða innan Formúlunnar og þá ekki síst á Haas-liðið hið bandaríska sem styrkt er af rússneskum risa.