Eplið og framrúðan: Gamalt trix, nýtt epli
Til hvers að borða eplið þegar hægt er að „smyrja“ því á framrúðuna og framljósin? Svo má auðvitað líka spyrja að hinu gagnstæða. Nema hvað! Það er í raun og veru alveg stórskemmtilegt að skoða hin ýmsu trix en ekki virka þau öll.
Áður en eplatrixinu eru gerð skil þá verður dálítill formáli eða hugleiðing að komast að:
Það getur verið mjög áhugavert og jafnvel gaman að deila svona „bílatrixum“ þegar lesendur verða alveg sótillir og ramba á barmi áfalls yfir því „að blaðamaður sé svo truflaður að birta önnur eins ósköp“. Já, eins og hér sé verið að deila uppskriftum úr uppskriftabók djöfsa og blaðamaður sjálfur sé þar potturinn og pannan í öllu saman. Eða alla vega á prósentum fyrir hvern þann sem lætur til leiðast og prófar þau trix sem til umfjöllunar eru.
Þannig er nú starfi blaðamannsins ekki háttað í grunninn. Eitt gott ráð fyrir þá sem ætla gjörsamlega að sjóða upp úr eigin skrokki yfir því sem hér er framreitt, er að fá sér stressbolta, og kremja hann í gríð og erg. Annað ráð er að hætta að lesa.
Mynd/Unsplash
En nei, lesendur góðir, síst er nú meiningin að hrella ykkur. Enda ljóst að flestir lesendur kunna ágætlega að vega og meta sjálfir hvort vit sé í að bragða á öllu því sem borið er fram á rafrænt veisluborðið. Eins og til dæmis hvort þeir vilji sjálfir reyna eplatrixið sem hér er til umfjöllunar. Hér lýkur hugleiðingu minni. Formlega.
Spurðu lemúrinn. Hann tekur líka við kvörtunum, endurgreiðslum og frjálsum framlögum. Mynd/Unsplash
Eplabrellan
Framrúða er ekki endilega það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar epli eru til umföllunar. En samkvæmt því sem bragðarefurinn segir í meðfylgjandi myndbandi þá er það að skera epli í tvennt og nudda með því framrúðu og ljós gamalt ráð frá trukkabílstjórum. Enda eru þeir þekktir fyrir að borða annað en ávexti.
Mynd/Unsplash
Segir hann enn fremur að pödduklessur megi fjarlægja með einni léttri eplastroku og að sýra í eplinu vinni vel á drullu, skít og almennum leiðindum sem vilja safnast á rúður og ljós. Þetta ku vera eitursnjallt ráð þegar rúðuþurrkur klikka eða rúðuþurrkumótorarar bræða úr sér.
Núnú! Hér er hún: Eplabrellan gamla.
Fleira misgáfulegt en gott:
Aðrar umfjallanir
Alrafmagns ID.2 verður markaðssettur sem rafknúinn valkostur við VW T-Cross...
Á hraða formúlubíls og með hlass á pari við íbúðarhús lendir farþegaþota oftast nær án þess að sprengja dekk. Þetta er Bílablogg en það eru jú líka dekk undir flugvélum þannig að þær fá að vera með hér, dekkjanna vegna!
Margir hafa beðið eftir því að nýi Grenadier-jeppinn, sem byggir mikið á gamla góða Land Rover, og núna er orðið ljóst að það styttist í það...
AMG jepparnir frá Mercedes Benz eig sína aðdáendur, sem segja að þetta sé lang flottasti jeppinn á markaðnum...