Aston Martin DB5, árgerð 1964, sem sjálfur Sean Connery átti, er til sölu. Þeir sem ekki vita aura sinna tal geta loks losnað við hluta klinksins og í leiðinni stutt gott málefni. Og ekki nóg með það heldur fær sá sem mest getur borgað að fara í bíltúr með Sir Jackie Stewart.
Bíllinn verður boðinn upp þann 18. ágúst og er heilmikið umstang í kringum það. Hér fyrir neðan er fantafínt myndband, stutt en gott, um bílinn og Connery. Á meðal viðmælenda er „The Stig“ (fyrrverandi auðvitað) sem og sjálfur Sir Jackie Stewart.
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
Þessi glæsilegi Toyota Land Cruiser 60 G bíll var gerður upp í Texas fyrri skömmu. Bíllinn var tekinn í nefið eins og menn segja og uppfærður...
Við höfum áður séð ýmislegt á bílavefsíðum um væntanlegan Kia EV9, en þetta er í fyrsta skipti sem við sjáum opinberar myndir frá Kia...
Það er eins gott að hafa húmor fyrir sjálfum sér og eiga nóg af peningum þegar 15 milljón dollara (tveggja milljarða króna) kaggi er næstum skemmdur vegna klaufsku manns sjálfs!
Rafbílar eru aðeins um 10 prósent af heimsmarkaði, en nú þegar eru bílaframleiðendur og birgjar að undirbúa sig fyrir næstu kynslóð íhluta með „solid-state“ rafhlöðum.