Dacia lýkur við endurgerð vörumerkisins með nýju útliti
Uppfærð hönnun og lógó, nýir litir og endurnýjun söluaðila er Dacia að undirbúa sig fyrir næsta kafla
Af þeim tegundum sem náð hafa ágætri fótfestu á markaði hér á landi er Dacia. Hann hefur til dæmis átt góðu gengi að fagna á markaðinum sem bílaleigubíll, þar sem Duster er algengur á vegum landsins með ferðamenn innanborðs.
Á bílasýningunni í París í næsta mánuði er Dacia búið að tilkynna um viðveru sína og af því tilefni voru þeir að kynna endurmótun á framboði sínu sem verður kynnt þar af fullum krafti
Í kjölfar tilkynningar um „Renaultlution“ stefnumótun snemma árs 2021 sem endurskilgreindi framtíðarsýn Renault Group fyrir Dacia vörumerkið, hefur fyrirtækið nú lokið endurbótum sem felur í sér nýja hönnunarmeðferð fyrir gerðir þess – þar á meðal nýtt lógó – sem og algerlega endurbætt útlit fyrir söluaðila sína.
Ný, skarpari hönnun bílana er mest áberandi þátturinn í endurskilgreiningu fyrirtækisins, með áberandi framljósum og nýja samtengda Dacia-merkinu sem er í miðju á krómuðu grilli á öllum gerðum.
Samhliða þessu er Dacia að laga stöðu sína á lúmskan hátt og einblína meira á viðskiptavini með virkan lífsstíl sem eru að leita að bílum með gott notagildi, án þess að að fá eitthvað minna fyrir peninginn.
Þess vegna verða nýjar nýjungar eins og tjaldrúmakerfi fyrir Jogger sjö sæta fjölskyldubílinn og fylgihlutir sem innihalda tjald mun verða í boði í framtíðinni, auk nýrra lita og í auknum mæli meira endurunnið efni í bílum sínum.
Markmiðið fyrir endurunnið efni sem notað er í framleiðslu á nýju Duster fyrirtækisins sem kemur á næsta ári er 20 prósent af öllum hlutum bílsins, með nýju efni sem kallast „Starkle“ – endurunnið pólýprópýlen með flekkóttri áferð sem þarfnast ekki málningar.
Þróun á Media Control appi vörumerkisins sem nú inniheldur tækni til að greina sljóleika ökumanns verður einnig sett á laggirnar, en aukin nýting snjallsíma eigenda mun verða áhersla Dacia í framtíðinni.
Vörumerkið mun einfalda kaupin með pöntunarkerfi á netinu ásamt því að endurhanna algerlega sýningarsali og bæta þannig upplifun viðskiptavinanna.
Samkvæmt Denis Le Vot forstjóra Dacia: „Ár eftir ár laðar Dacia að sér nýja viðskiptavini sem eru að leita að því eftirsóttasta í heiminum í dag: nauðsynlegustu hlutunum. Þessir nýju viðskiptavinir stefna að skynsamlegu, ábyrgu samfélagi og nýjum sjónarhóli á bíla.
„Bílar sem þú dregur þig að vegna þess að þeir hafa það sem til þarf, þægindi ,útlitið og eru lang ódýrastir.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Í Kaliforníu hafa stafrænar númeraplötur verið til reynslu síðan 2018 og nú er reynslutímabilinu lokið. Bíleigendum er frjálst að fá sér stafrænar plötur á ökutæki sín en stóra spurningin er: Til hvers?
Ökumaður Williams-liðsins í Formúlu 1, Nicholas Latifi, er miður sín yfir að hafa „valdið“ uppnámi í kappakstrinum í Abu Dhabi í gær. Latifi er ökumaðurinn sem ók á brautarvegginn á 52 hring en í framhaldi af því umturnaðist keppnin þegar aðeins 6 hringir voru eftir.
Volkswagen rúgbrauð, Samba er þessi flott bíll kallaður. Bíllinn sem um ræðir er nýlega uppgerður og mjög sjaldgæf útgáfa frá árinu 1962...
Ford vill leiða breytinguna yfir í lithium járnfosfat rafhlöður...