Dapurleg örlög kreppubílsins Dymaxion
11 manna bíll, með eindæmum sparneytinn, kemst leikandi upp í 190 km/klst og getur haldið þeirri ferð á hraðbrautinni? Jú, það er ekki galin tilhugsun í dag. En hvað með árið 1933? Bandaríski hugvitsmaðurinn Buckminster Fuller hannaði slíkt ökutæki.
Módel af bílnum. Mynd/Wikipedia
Snjöll hugmynd
Fuller fékk hugmyndina í heimskreppunni, eða Kreppunni miklu, og hannaði bíl sem hafði það til að bera sem talið var upp hér í inngangi. Árið 1933 smíðaði Chrysler nokkrar frumgerðir sem voru gæddar öllum þeim eiginleikum og kostum sem lagt var upp með.
Í bílnum var V-8 vél sem sjálfur Henry Ford gaf Fuller með þeim hvatningarorðum að Fuller ætti endilega að gera tilraunir með. Vélin var þá algjör nýjung og lítil sem engin reynsla komin á hana.
Hönnunin á bílnum og vélin fóru vel saman og komst Dymaxion auðveldlega upp í 190 kílómetra hraða á klukkustund. Eyðslan? Það var alveg með ólíkindum hversu lágar eyðslutölurnar reyndust en bíllinn eyddi um 12 lítrum á hundraðið – sem þótti virkilega flott á þeim tíma!
Þessi er á samgönguminjasafninu í Reno í Nevada. Mynd/Wikipedia
Krappar beygjur á kreppubíl
Dymaxion var um 6 metra langur og var hægt að nánast snúa þessu ferlíki „á punktinum“ ef svo má segja. Það var vegna hjólsins (sem hægt var að stýra sjálfstætt) að aftan en bíllinn var mun breiðari að framan en aftan og sögðu menn að það hafi verið sérlega gaman að leggja bílnum samsíða gangstéttarbrún (parallel parking eins og maður segir á útlensku!).
Myndir/Wikipedia
Hins vegar er sagt að bíllinn hafi verið dálítið einkennilegur, þá einkum í hliðarvindi. Sagt var að hinn óvenjulegi skýrisbúnaður hafi komið í veg fyrir að Dymaxion færi í almenna framleiðslu.
Þetta er það sem gerðist:
Ein frumgerðanna var á ferðinni á heimssýningunni í Chicago árið 1933. Þar gátu gestir skoðað þennan kostum prýdda bíl og einhverjir fóru í bíltúr. Það fór nú ekki vel. Nei, þvert á móti fór það afar illa því ekið var á Dymaxion og við það valt hann og bílstjóri Dymaxion lét lífið. Ekki nóg með það að bílstjórinn, kappaksturshetjan Francis T. Turner, hafi dáið heldur slösuðust farþegar hans illa. Á meðal farþega voru franski sagnfræðingurinn, stjörnufræðingurinn og flugkarlinn Charles Dollfuss og skoski flugfrömuðurinn og afreksmaðurinn William Sempill (síðar njósnari).
Embættismaður og afglöp
Þetta var auðvitað hið versta mál og var það háttsettur embættismaður sem ók hinum bílnum. Því ruku menn upp til handa og fóta og var bíll embættismannsins fjarlægður áður en blaðamenn kæmu á staðinn. Það var í trássi við allt því ekki mátti fjarlægja bílinn fyrr en búið væri að rannsaka slysstað.
Myndir/Wikipedia
Var bíllinn kallaður viðundur og furðufar og eins og algengt var á þessum tíma þá var það sjálfur bíllinn sem gerður var að blóraböggli: „Bíllinn drap bílstjórann, kappaksturhetjuna frægu og stóraslasaði erlenda gesti sýningarinnar.“
Þarna má t.d. sjá myndlistamanninn Diego Rivera (heldur víst á frakka) ásamt fleirum skoða Dymaxion árið 1933.
Það fór því svo að farartækið sem menn sáu fyrir sér sem framtíðarbílinn fékk ekki inngöngu inn í framtíðina en aðeins eitt eintak frumgerðanna hefur verið varðveitt og er það á samgönguminjasafninu í Reno í Nevada.
Þessu tengt:
Aðrar umfjallanir
Í dag er mjög lítið vitað um hvernig nýi pallbíllinn frá Tesla mun líta út. Tesla sýndi felumynd af bílnum á Model Y frumsýningunni fyrr á þessu ári (sýndi nánast ekkert)...
Alfa Romeo er að undirbúa fyrsta rafknúna ökutækið sitt fyrir árið 2022 sem er það minnsta af þrennu sportjeppa...
FRANKFURT - Bloomberg og Reuters: Elon Musk valdi hátíðlegan atburð í þýska bílaiðnaðinum, afhendinguna á „gullna stýrinu“ í Þýskalandi, nokkurra...
Já, það er eitt og annað sem virðist endalaust. En aldrei fyrr hafði ég hugsað um Datsun í hinu endalausa samhengi. Ekki fyrr en gömul grein í dagblaði vakti athygli mína.