Nýtt met á Nürburgring
Á aðeins 6:35,183 mín er Mercedes-AMG ONE númer 1 á Nürburgring-Nordschleife
Maro Engel sló þann 28. október fyrra met í bíla sem koma frá bílaframleiðslu sem eru löglegir á vegum um ótrúlegar átta sekúndur þrátt fyrir að brautaraðstæður hafi ekki verið upp á það besta
Þar með setti ofurbíllinn með Formúlu-1™ tækni nýtt met fyrir ökutæki sem eru lögleg framleiðsla á vegum sem og í flokki ofursportbíla.
Það var erfitt að slá metaksturinn 28. október 2022 hvað spennu varðar: nákvæmlega klukkan 17:14:31 fór kappakstursökumaðurinn og sendiherra AMG vörumerkisins Maro Engel á brautina í síðustu tilraun dagsins og spólaði af stað og setti nýtt og stórkostlegt tímamet á hinni goðsagnakennda og krefjandi hraðakstursbraut í Eifel í Þýskalandi.
Þarna var tíminn að renna út því brautinni hefði verið formlega lokað klukkan 17:15. Þó Maro Engel hafi þegar sett nýjan besta tíma í fyrri ferð var ökumaðurinn ekki enn sáttur.
Til að ná þessum hraða varð að nýta sem best DRS-aðgerðina sem þekkt er úr Formúlu 1 og DTM, þar sem vængirnir eru flattir tímabundið.
Maro Engel er hér stoltur eftir að hafa sett þetta nýja brautarmet á Nürburgring-Nordschleife
Hér er hópurinnfrá Mercedes-AMG sem stóð að baki að slá Nordschleife hringmetið fyrir bíla semeru löglega framleiddir á vegum – og metið tilheyrir nú hybrid Hypercar One.
„Þetta var í raun ógleymanleg upplifun,“ sagði Maro Engel eftir að hafa lokið methringnum.
„Ég bjóst ekki við því að við myndum geta sett svona hringtíma við þessar brautaraðstæður.
Á sumum mikilvægum svæðum brautarinnar hafði hún ekki þornað alveg enn og var því erfið.
Vegna þess að brautin hafði ekki þornað alveg gat Maro Engel ekki farið upp í hámarkshraða á öllum köflum leiðarinnar heldur varð að hann að slá af.
Maro Engel og AMG-stjórinn Philipp Schiemer með opinbera spjaldið með brautartímann: 6:35,183
Það var sérstök áskorun. Við reyndum að finna bestu dreifingarstefnuna í forprófunum. Eins og Lewis Hamilton og George Russell gera þegar þeirr keppa um helgar, þurfti ég líka að beita raforku tvinndrifsins á besta mögulega hátt.
AMG One kláraði methring sinn á stöðluðum Michelin dekkjum í Pilot Sport Cup 2 R MO forskriftinni sem var sérstaklega þróuð fyrir ofurbílinn, en þau voru forhituð fyrir notkunina á brautinni.
„En þetta er líka alvöru Formúlu 1 tilfinning. Ég vil þakka fyrir þetta tækifæri og það traust sem mér var sýnt“, sagði Maro Engel. Það var örugglega mjög sérstakt að keyra þennan ótrúlega bíl á „Hringnum“.
(Mercedes-Benz Group Media – Auto Motor undf Sport – myndir Mercedes)
Aðrar umfjallanir
19. júlí sl voru liðin 53 ár frá fyrstu komu manna til tunglsins. “The Eagle has landed” var tilkynningin sem geimfararnir sendu til Jarðar til að tilkynna komu sína á áfangastað...
Í apríl síðastliðnum efndi Rolls-Royce til samkeppni meðal krakka um allan heim. Breski lúxusbílaframleiðandinn vildi sjá börn hanna...
Það var eitthvað torkennilegt sem blasti við lögreglumanninum í Queensland í Ástralíu þegar hann stöðvaði ökumann nýverið. Bíllinn sem maðurinn ók var af gerðinni Suzuki Jimny frá 1990 og hafði bílnum verið breytt í pallbíl. En það vantaði eitthvað…
Ford Mondeo eins og við þekkjum hann er ekki lengur til þar sem Ford hefur staðfest að nú sé hætt framleiðslu á bílnum í Evrópu...