ID.Buzz er bíll ársins í Danmörku 2023
Vinningshafinn hefur nýlega verið valinn á stórum viðburði í Haaning Collection bílasafninu í Bagsværd
Dómnefndir danskra bílablaðamanna hafa útnefnt bíl ársins í Danmörku 2023.
Það var tilkomumikið að klára atkvæðatalninguna, þar sem 5 dyra MG 4 Electric var lengi í toppsætinu.
Rafdrifin arftaki gamla góða „rúgbrauðsins“ Volkswagen hlaut verðlaunin með 119 stig .
…en MG 4 varð í öðru sæti með 118 stig.
Á eftir þeim komu Renault Megane E-Tech og Nissan Ariya.
Sex rafbílar og einn bensínbíll
Þetta er fjórða árið í röð sem rafbíll hlýtur titilinn. Þegar á heildina er litið voru bílarnir í valinu nánast bara rafbílar því sex af sjö bílum í úrslitaleiknum voru hreinir rafbílar.
Bíll ársins í Danmörku er valinn af dómnefnd 20 bílablaðamanna og hafa verðlaunin verið veitt á hverju ári síðan 1969.
MG 4 Electric kemur á óvart með skilvirkri driflínu, alhliða búnaði og þægilegum aksturseiginleikum fyrir minna en 300.000 danskar krónur.
Formaður Danske Motorjournalister, Karsten M. Lemche (til hægri), afhenti Thomas Hjortshøj blaðafulltrúa Volkswagen í Danmörku viðurkenninguna fyrir bíl ársins. © Lars Krogsgaard.
Kosið var um bílana sjö eftir tveggja daga prófun á nýjum gerðum bíla á markaði á og við FDM Jyllandsringen í október. Það voru 20 dómnefndarmenn, 50 reynsluakstursbílar og 40 fjölmiðlamenn sem tóku þátt.
(frétt á vef BilMagasinet)
Aðrar umfjallanir
Það vakti heldur betur athygli þegar Infinity kynnti nýja herferð sem þeir kalla Nissan-Plus sem part af endurskipulagningu fyrirtækisins...
28 september 2022. Polestar (Nasdaq: PSNY) frumsýnir sinn fyrsta jeppa, Polestar 3, á frumsýningarviðburði þann 12. október 2022 í Kaupmannahöfn í Danmörku...
Á vorin þegar fer að birta, það hlýnar aðeins og ekki rignir birtast á kvöldin fallegustu menn og konur landsins á...
Peugeot hefur staðfest að framleiðandinn muni setja á markað hreina rafknúna útgáfu af nýjum 308 hlaðbak á næsta ári, sem mun keppa við bíla eins og Volkswagen ID.3 og Cupra Born.