Gleðilegt nýtt ár!
Við hjá Bílabloggi óskum lesendum okkar gleðilegs árs og takk fyrir allar heimsóknirnar á árinu sem var að kveðja.
Bílablogg er ekki gamall vefur en hefur náð að vaxa og dafna vel, sérstaklega vegna áhuga ykkar lesendur góðir á því efni sem við höfum haft fram að færa.
Á þeim stutta tíma sem við höfum starfað höfum við fært ykkur 3281 frétt í 11 fréttaflokkum og reynsluekið 152 mismunandi bílum.
152 þúsund gestir og tæp hálf milljón smella
Á árinu sem var að kveðja fengum við alls um 152.000 gesti á vefinn og „smellir“ á vefinn voru tæp hálf milljón á árinu – nokkuð sem við getum verið ánægð með – og örugglega auglýsendur á vefnum líka.
Nýtt vefumhverfi
Á næstu dögum mun vefurinn síðan birtast í nýju „vefumhverfi“ sem mun gera hann enn læsilegri en áður, betra verður að skoða efnisflokka og fylgjast með fréttum.
Aðrar umfjallanir
Nýi Ioniq 5 rafknúni krossover-bíllinn frá Hyundai lofar góðri hröðun, rúmgóðu innanrými og framúrstefnulegu stafrænu mælaborði - í einu orði sagt...
Samkvæmt frétt á Autoblog mun Volkswagen afhjúpa alvegg nýjan hugmyndabíl, hluta af ID-bílum VW sem hluta af sýningu sem verið er að skipuleggja á rafknúnum
Hönnun nýja Peugeot 208 hefur hlotið einróma lof fyrir framsækið og nútímalegt útlit sem er undirstrikað með LED fram- og afturljósum...
Þrátt fyrri mikla stöðvun í bílaheiminum að undaförnu eru þó farnar að berast fréttir af nýjungum sem eru á döfinni...