Breytingar framundan hjá SsangYong en bíðum átekta

- segir Benedikt Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna

Við vorum að fjalla um breytingar hjá bílaframleiðandanum SsangYong í Suður-Kóreu á dögunum, en þeir voru að kynna fjóra nýja bíla nýlega á Seoul Mobility Show, þar á meðal Torres EVX, fyrsti rafbíllinn síðan samsteypa KG Group keypti meirihluta í fyrirtækinu í september 2022, en það er Torres sem er á myndinni hér að ofan.

Bíðum átekta

„Við bíðum róleg átekta til að sjá hverju vindur fram hjá þeim“, segir Benedikt.

SsangYong Musso kemur með nýja gerð Saracen+ pallbílsins með 30 cm viðbótarlengd á palli

image

Gæti þetta verið síðasta nýja gerð SsangYong sem við fáum? - spyr vefsíða AutoExpress.

En af því að Musso á sér marga aðdáendur hér á landi gátum við ekki staðist það að birta nokkrar myndir af þessum endurbætta pallbíl, þótt hann komi ekki að sinni hingað til lands

Auto Express er að vísa til hér að ofan til gamla góða Musso pallbílsins sem hefur gengið í endurnýjun lífdaga og breytingar.

image

Nýja SsangYong Musso Saracen+ útgáfan er með 30 cm lengd til viðbótar. Lengri gerðin notar enn sama undirvagn og drifrás og venjulegar útgáfur af Musso, með framlengingu sem er fyrir utan afan afturöxul pallbílsins, svipað því sem við munum eftir að gert var við pallbíla hér á landi fyrir allmörgum árum vegna VSK-reglna um stærð á palli hér í eina tíð.

image

Samhliða nýju burðargetunni kemur Saracen+ (og reyndar venjuleg Saracen útgáfa af Musso) með svörtum hliðarspeglum og svörtum áherslum í miðju og á afturhlera. Einnig fylgja nýhönnuð 18 tommu álfelgur með svörtu.

image

Miðjugerðin Musso Rebel byggir á EX með því að bæta við 8 tommu upplýsinga- og afþreyingareiningu með Apple CarPlay og Android Auto tengingu.

image

Allar útgáfur af Musso eru knúnar af 2,2 lítra túrbóknúnri fjögurra strokka dísilvél sem skilar 199 hestöflum og 441Nm togi, sem tengist sex gíra beinskiptingu eða sjálfskiptingu, allt eftir búnaði. Verð fyrir endurskoðaða Musso-línuna byrja frá 25.140 pundum fyrir VSK á Bretlandi, eða sem svarar ISK 4,24 milljónir.

(frétt á vef Auto Express)

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is