Fjórhjóladrifinn laugardagur hjá Toyota
Það var margt um manninn hjá Toyota í Kauptúni í dag. Tilefnið var stórsýning á kvartett þeirra hjá Toyota í fjórhjóladrifnum farartækjum.
Glæsilegur og splunkunýr Toyota Highlander
Splunkunýr Highlander var kynntur til sögunnar í fyrsta skipti á Íslandi. Highlander bílinn er boðinn í Hybrid útgáfu með 244 hestafla vél og uppgefin eyðsla er um 5.1 líter á hverja 100 km. Það verður að teljast vel sloppið fyrir svo stóran bíl.
Highlander er með sæti fyrir 7 manns. Verð er frá 10.690 þús.
Splunkunýr Toyota Highlander.
Vel þekktir jaxlar uppfærðir
Einnig voru kynntar nýjar og uppfærðar vélar í vel þekktum jöxlum en Land Cruiser og Hilux koma með nýrri 2.8 lítra díselvél sem gefur um 204 hestöfl. Land Cruiser er boðinn frá 9.840 þús. og Hilux frá 7.090 þús.
Nýjar, kraftmeiri og grænni vélar kynntar í Land Cruiser og Hilux.
Þá mátti sjá RAV4 í bæði hybrid og Plug-in-hybrid á sýningunni en Plug-in-hybrid bíllinn var kynntur til leiks hjá Toyota nýlega. Sá bíll er ákaflega vel heppnaður, kraftmikill og hagkvæmur í senn. Árið 2019 var Toyota RAV4 söluhæsti sportjeppi á heimsvísu.
RAV4 er vinsæll sportjepplingur.
Tvö sett í sama húsi
Í ljósi COVID-19 þarf að passa að sóttvarnareglum sé fylgt en þeir hjá Toyota í Kauptúni voru með sýningarsvæðið hólfað niður og talið var inn í húsið. Þannig voru í raun tvær sýningar með tvöföldum sýningarflota í hólfuðum sal. Til fyrirmyndar hjá Toyota á Íslandi.
Tvær alveg eins sýningar í tveimur hólfum í Toyota Kauptúni í dag.
Aðrar umfjallanir
Bílar sem voru látnir hverfa ofan í vatnsþró nokkra skammt frá Glasgow á tíunda áratug síðustu aldar, hafa loks verið fjarlægðir. Mörgum til ánægju er þessi fúli pollur nú minna fúll en áður og óþefurinn ekki eins stækur.
Samkvæmt nýrri frétt frá Reuters segir að Tesla stefni að því að hefja fulla Cybertruck fjöldaframleiðslu fyrir lok næsta árs...
Samgöngustofa opnaði í síðasta mánuði nýjan og betri bifreiðatöluvef. Með nýjum vef er aðgengi að tölfræði um ökutæki á Íslandi...