Alfa Romeo Giulia og Stelvio fá uppfærslu á útliti
Í nýliðinni viku birti Alfa Romeo myndir af nýju útliti Giulia og Stelvio bílanna. Kominn var tími á uppfærslu enda bílarnir búnir að vera nokkur ár á markaðinum í núverandi útfærslu.
Stærstu breytingarnar eru í innanrými bílsins og öryggisbúnaði, eins og akgreinavara, blindhornaviðvörun, annars stigs sjálfakstursbúnað og árekstrarviðvörun. Verkfræðingar Alfa Romeo hafa hinsvegar ekkert átt við hina 510 hestafla V6 vél undir húddinu á bílnunum.
Aðrar umfjallanir
Aston Martin DB5, árgerð 1964, sem sjálfur Sean Connery átti, er til sölu. Þeir sem ekki vita aura sinna tal geta loks losnað við hluta klinksins og í leiðinni stutt gott málefni. Og ekki nóg með það heldur fær sá sem mest getur borgað að fara í bíltúr með Sir Jackie Stewart.
Eitt af því sem hefur tekið miklum breytingum í bílaheiminum eru gírskiptingar og gírkassar...
Fólksvagninn, Volkswagen, VW, Bjallan… Bjöllur heimsins eru fjölmargar og ekkert furðulegt að enn sé góður slatti til af þeim 21,529,464 sem framleiddar voru frá 1938 til 2003. En ekki eru þær þó alls staðar kallaðar bjöllur með vísan til skordýrsins. Alls ekki!
Dómnefnd alþjóðlegu verðlaunahátíðarinnar Festival Automobile International (FAI) valdi í lok síðasta árs sigurvegara ársins í fjórtán mismunandi verðlaunaflokkum...