MAZDA FAGNAR 100 ÁRA AFMÆLI MEÐ STÓRSÝNINGU OG VEGLEGUM AFMÆLISTILBOÐUM

Brimborg fagnar 100 ára afmæli Mazda með stórsýningu og veglegum afmælistilboðum á fjölmörgum gerðum af Mazda bílum. Gleðin hefst laugardaginn 8. febrúar með stórsýningu í Reykjavík og á Akureyri.

image
image

EINSTÖK HÖNNUNARSTEFNA MAZDA, KODO: SOUL OF MOTION

Mazda er í sérflokki japanskra bílasmiða hvað varðar hönnun og þar leikur hönnunarstefna Mazda, Kodo: Soul of Motion lykilhlutverk. Velgengni Mazda hefur verið mikil og heil öld í bílaframleiðslu segir meira en mörg orð.

image

Ástríðufull nálgun Mazda á bílahönnun hefur fært Mazda yfir 350 verðlaun fyrir hönnun og nýsköpun, allt frá hinum eftirsóttu Red Dot Design verðlaunum til What Car? bíl ársins.

image

Fyrir utan einstaka hönnun ytra útlits og innra rýmis eru verkfræðingar Mazda þekktir fyrir einstaka natni sína við þróun afburða aksturseiginleika og áreiðanleika.

LÚXUSUPPLIFUN Í MAZDA

Með nýrri hönnun Mazda og natni við smáatriði er japanski bílaframleiðandinn að stimpla sig inn á lúxusbílamarkaðinn. Innra rýmið er hannað með gæðaefnum með einstakri áferð sem gælir við skynfærin. Mazda býður upp á einstaklega hljóðlátt innra rými þar sem veghljóð hefur verið lágmarkað. Ríkulegur staðalbúnaður og framúrskarandi öryggistækni verður til þess að ökumaður upplifir einstaka tilfinningu.  

image
image
image

BYLTINGARKENND SKYACTIV-X VÉLARTÆKNI

Mazda hefur náð einstökum árangri í vélarhönnun og nýjasta kynslóð vélbúnaðar frá Mazda byggir á hinni byltingarkenndu Skyactiv-X tækni. Skyactiv-X tæknin gerir það að verkum að hægt er að auka afl umtalsvert en um leið draga úr eyðslu og mengun.

image
image

SKYACTIV-X skilar 180 hestöflum en eyðir aðeins 5,6 lítrum per 100 km. og losar aðeins 131 gr. af CO2 per km.

image

KOMDU Á STÓRSÝNINGU MAZDA OG KYNNTU ÞÉR VEGLEG AFMÆLISTILBOÐ Á MAZDA BÍLUM.

image
Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is