Hinn nýi Ford Ranger hlýtur viðurkenninguna „alþjóðlegur pallbíll ársins 2020“
Ford hlýtur einnig viðurkenninguna „alþjóðlegur sendibíll ársins 2020“ í tveimur flokkum
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442821_1895095698743455104_4243463870000.jpg)
Ford Transit Custom Plug-In Hybrid, Transit Custom EcoBlue Hybrid og Ford Ranger: Mynd: Ford Motor Company
Hinn nýi pallbíll Ford Ranger Ford Ranger hefur nú verið valinn “pallbíll ársins 2020” eða „International Pickup Award“. Í nóvember varð Ford fyrsti bílaframleiðandinn til að hljóta bæði viðurkenninguna „alþjóðleg sendibifreið ársins“ og „alþjóðleg pallbifreið ársins“ á sama ári við tvö mismunandi tækifæri. Í framhaldi af frammistöðu sinni frá 2013 sópaði Ford þessum viðurkenningum sem veittar eru árlega með Transit Custom Hybrid sem fékk IVOTY 2020 verðlaunin og Ranger vann IPUA 2020.
Nýi Rangerinn náði hylli 18 fulltrúa af 25 í dómnefndinni, og bíllinn fékk jafnframt mikið lof fyrir skilvirka 2,0 lítra EcoBlue dísilvélina og frammistöðu hins nýja nýja Ranger Raptor.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442822_4278945726385530841_4244888875000.jpg)
Ford Ranger Raptor.
„Nýju Transit Custom Plug-In Hybrid og EcoBlue Hybrid gerðirnar eru réttu farartækin á réttum tíma - hjálpa viðskiptavinum okkar að draga úr kostnaði og losun og mæta þeim áskorunum sem fylgja því að starfa í viðskiptaumhverfi nútímans án þess að fórna hagkvæmni eða álagi. Og þessi nýi Ranger okkar er með meiri fágun, tækni og afköst í flokki pallbíla“, segir Hans Schep, framkvæmdastjóri atvinnubíladeildar hjá Ford í Evrópu.
Á 11 mánaða tímabili er Ford áfram í fyrsta sæti í sölu atvinnubíla í Evrópu. Við lok október var Ranger söluhæsti pallbíllinn í Evrópu og er salan alls 43.300 eintök en salan á bílum Transit Custom fjölskyldunni alls 114.000 bílar.
![image](https://img.bilaskra.is/images/1612442824_6808212236672319140_4246088841000.jpg)
Ford Transit Custom sem hefur hér fengið smá upplyftingu.
![](https://uploads-ssl.webflow.com/5d7552387a6dfaca8c256678/5d7643b98b433514d3f6cdf7_bilablogg_logo.png)
Aðrar umfjallanir
![](https://img.bilaskra.is/images/1663594805_2868083711272753633_17220710396581155.jpg)
Það er óhætt að segja að Dacia hafi átt sviðið (stóran hluta þess) undanfarna daga í bílaheiminum. Hér er ein frétt í viðbót þar sem segir frá rafknúnum torfærubíl sem er mjög áhugaverð hugmynd!
![](https://img.bilaskra.is/images/1660074007_3082924958395256263_13699912214838521.jpg)
Frá snjómokstri til fílaburðar og allt þar á milli; hlutverkin sem Land Rover hefur gegnt eru sennilega óteljandi en eru þau öll við hæfi? Það er nú það! Ljóst er að bílinn má nota í ýmislegt – það fer ekki á milli mála. Hér er örlítið sýnishorn.
![](https://img.bilaskra.is/images/1656276007_3321531174498389745_9901911591713646.jpg)
Þegar Tyler Hoover byrjaði með bílaumfjöllun á YouTube var hann ánægður með sinn gamla Mercedes-Benz 300SD. Áður en hann vissi af var hann búinn að kaupa sér hina ýmsu bíla og bílskúrinn orðinn að „leiðindasafni“ eins og hjá of mörgum YouTube-bílakörlum.
![](https://img.bilaskra.is/images/1677343207_6014532430891191853_30969112342240027.jpg)
Tavares, forstjóri Stellantis, segir að Euro 7 reglur um útblástur séu „út í hött“...