Hyundai með fulla beygju á öllum hjólum
Hyundai Ioniq 5 með „e-corner“ getur snúið hjólunum 90 gráður
Frumgerðin sem kynnt var á CES getur líka snúist í 360 gráður, ekið á ská og snýst eins og lyftari
Hyundai Mobis, varahluta- og deild sjálfvirks aksturs hjá Hyundai, kynnti frekar magnaða hjólastýringu sem sett var á frumgerð Ioniq 5 á tæknisýningunni 2023 Consumer Electronics Show (CES) í Las Vegas á dögunum.
Hugmyndin var upphaflega kynnt árið 2018, en búnaðinum var komið fyrir í eitt stykki Ioniq 5 EV, og það er sannarlega áhrifamikið hverju Hyundai náði fram með frumgerðinni.
Kyninningamyndband sem sýnir þetta betur
Eins og sjá má í myndbandinur hér að ofan getur bíllinn snúið hjólunum í 90 gráður í sömu átt, sem gerir bílnum kleift að komast inn og út úr samhliða bílastæði mjög auðveldlega.
Skýringarmyndband frá Hyundai Mobis
En það er ekki allt, þar sem e-Corner kerfið getur í rauninni gert allar hreyfingar sem hægt er að hugsa sér.
Þú getur horft á báðar þessar gömlu fréttamyndir hér að neðan:
Fréttamyndin frá París 1927:
„Park-Car“-búnaðurinn frá því um 1930
Aðrar umfjallanir
Þegar það er erfitt að bíða eftir Cybertruck er nauðsynlegt að finna upp á einhverju sniðugu til að tíminn líði hraðar. Hér eru nokkur dæmi úr Cybertruck-heimum:
Þó sannarlega megi sjá fjölda fugla í myndinni The Birds eftir Alfred Hitchcock þá eru bílarnir í myndinni kannski öllu meira spennandi í augum lesenda. Þeir eru býsna margir, þ.e .bílarnir.
MOSTAR, Bosníu - Aðdáandi Tesla í Bosníu gat ekki bara setið og beðið eftir að bílaframleiðandinn kæmi með sinn Cybertruck, sem er væntanlegur...
Íslenskir lagatextar þar sem bílar koma við sögu eiga það margir hverjir sammerkt að þar er fjallað um bílstjóra sem maður þægi aldrei far...