Tesla Cybertruck mun bara alls ekkert virka neitt spes í samanburði við bílinn Thundertruck, verði sá síðarnefndi að veruleika. Sexhjóla, 940 hestöfl og með drægni yfir 1000 kílómetra. Er það ekki eitthvað?
Hugmyndin er komin frá hönnuðum í Los Angeles sem ákváðu í útgöngubanninu 2021 að hanna ofurtrukk. Raftrukk. Í stað þess að púsla eða baka brauð, eins og sagt er á síðunni þeirra.
Ekki fyrir afa og ömmu
Bíllinn, sem mögulega verður að raunveruleika, ætti að ná frá 0 upp í 100 á innan við 3.5 sekúndum í sexhjólaútfærslunni. 4x4 útgáfa er auðvitað grunnurinn en 6x6 er alltaf spennandi umfjölllunarefni.
Myndir/Thundertruck
Eftir að hafa skoðað myndir af bílnum sér maður nú ekki endilega fyrir sér gamlar konur og karla brölta upp í þennan bíl en á síðu Thundertruck kemur fram að bíllinn sé ekki fyrir hvern sem er.
Aðalhugmyndin er fólgin í því að hægt sé að breyta bílnum hægri vinstri, upp og ofar. Þetta minnir dálítið á Lego-bílatæknipakkana þar sem það er „þrennt í einum“. En það er nokkuð til í því að verði þessi bíll framleiddur þá mun Cybertruck bara verða nokkuð hversdagslegur í samanburði.
Hér er stutt myndband þar sem umbreytingarnar koma ágætlega í ljós.
Aðrar umfjallanir
En það sleppur ef þú ýtir 256 sinnum í röð á takkann á fjarstýringu bílsins. Annars fer allt í vitleysu! Sturlaðar staðreyndir á borð við þessa eru innihaldsefni þessarar greinar.
Kia er að kynna fyrsta rafmagnsbílinn af næstu kynslóð, og er jafnframt að taka upp nýtt heiti á komandi seríu sem lætur lítinn vafa leika um ættir sínar...
Sunnudagseftirmiðdag nokkurn brugðum við mæðgin okkur í bíltúr. Þetta var haustið 2013 og var ætlunin að heilsa upp á fuglana í fjörunni við Eyrarbakka.
Volvo mun fljótlega vera kominn með fulla rafknúna línu, þar sem það hefur það markmið að rafbílar verði 100% af sölu Volvo