Concept Recharge hugmyndabíll Volvo sýnir framtíðarrafbíla vörumerkisins
Volvo mun fljótlega vera kominn með fulla rafknúna línu, þar sem það hefur það markmið að rafbílar verði 100% af sölu Volvo strax árið 2030.
Volvo forsýndi hugmynd að nýjum rafbíl í dag með frumsýningu á „Concept Recharge“.
Núverandi rafbílar Volvo deila grunni með bílum sínum sem nota hefðbundnar brunavélar en næstu kynslóðir bíla verða frá upphafi hannaðir sem rafbílar.
Concept Recharge var upphaflega hannaður sem rafbíll, sem þýðir að hann er með flatt gólf og lengt hjólhaf til að hámarka innra rými bílsins.
Volvo segir einnig að rafbílagrunnurinn hafi gert hönnuðum kleift að koma sætunum fyrir upp á nýtt, fínstilla þakprófílinn og lækka húddið.
„Concept Recharge“ hugmyndin okkar er stefnuskrá fyrir rafknúna framtíð Volvo bíla sem og nýja gerð ökutækja,“ sagði Robin Page, yfirmaður hönnunar.
Í innanrými er stór 15 tommu skjár og síðan einnig lítill skjár fyrir framan stýrið.
Efst á framrúðunni er nýr „lidar“ skynjari, eða skynjari sem virkar eins og radar en notar leysigeisla, sem forsýnir einnig nýjan lidar skynjara sem verður bætt við næstu kynslóð XC90.
Við munum líklega sjá nokkrar af þessum hönnunaráhrifum strax á næsta ári þegar rafknúinn XC90 verður frumsýndur.
En látum nokkrar myndir í viðbót tala sínu máli:
(byggt á frétt á vef TORQUE REPORT)
Aðrar umfjallanir
„Eins og margir vita þá er ég bílakarl. Í gegnum tíðina hef ég fengið að aka býsna ótrúlegum ökutækjum, en aldrei hefði ég getað ímyndað mér neitt í líkingu við rafbílinn sem ég prófaði í dag,“ segir forseti Bandaríkjanna á Twitter. Viðbrögðin… já. Þau voru margvísleg.
PARIS - Stellantis mun hefja útflutning á vörubílum til Evrópu frá verksmiðju sinni í Kaluga í Rússlandi, til að mæta aukinni eftirspurn.
Flestir gera sér grein fyrir því að hemlavökvi flytur orku frá fótstigi til hjólanna og smyr hemlakerfið í leiðinni. Hann þarf að...
Afmælistilboð Peugeot hefur fengið frábærar viðtöku sem sést best á því að júní mánuður var sá stærsti í sögu Peugeot á Íslandi með 80 selda bíla...