Risastór flutningavél, hlekkjaður Ford Ranger Raptor og mikill hraði: Þetta er spennandi. Í splunkunýju myndbandi má sjá Ranger Raptor slíta sig lausan úr voðalegum hlekkjum. Bara eins og King Kong.
Annars er það ekki á hverjum degi sem bandarískur bíll, settur saman í Suður-Afríku, kemur með flutningavél (Antonov AN-12B sýnist mér) sem er skráð í Úkraínu (og í eigu úkraínsks félags) og er þannig kynntur í Evrópu af Ford í Bretlandi. Þetta er nú heldur betur margslungið!
Sá sem leikstýrði þessu myndbandi kann alla vega að blanda skemmtilegu dóti saman!
Viltu skoða fleira flugtengt:
Aðrar umfjallanir
Eins og það hefur nú verið gaman að fylgjast með afrekum og mistökum Roberts Maddox, eða The Crazy Rocketman, þá er það sennilega góð vísbending um að nóg sé komið þegar maður er farinn að hafa áhyggjur af því hvort sjóðheitt púströrið tendri bál í skeggi mannsins.
Ford Mustang Mach-E rafbíllinn er kominn til landsins og verður á Bíladögum á Akureyri dagana 17.-19. júní og til sýnis og reynsluaksturs...
Daimler, eigandi Mercedes-Benz, er að auka hraðann í umskiptum sínum yfir í rafknúna bíla og hyggst að mestu útrýma brunahreyflum...
Á dögunum hélt Stellantis sérstakan „rafbíladag“ og þar mátti víst sjá ýmislegt sem væri í vændum frá þeim í framtíðinni. Þar á meðal...