Daimler flýtir áætlunum um að vera eingöngu með rafbíla
- Fyrirtækið hyggst að mestu útrýma brunavélum fyrir lok áratugarins
Daimler, eigandi Mercedes-Benz, er að auka hraðann í umskiptum sínum yfir í rafknúna bíla og hyggst að mestu útrýma brunahreyflum fyrir lok áratugarins.
„Við erum að skipta úr rafbílum fyrst í rafbíla sem aðeins nota rafmagn frá rafgeymum“, sagði hátt settur stjórnandi sem þekkir til áætlunarinnar við Automobilwoche, systurútgáfu Automotive News Europe.
Þetta þýðir að allar gerðir af bílum verða með rafknúna útgáfu en framleiðslu, sölu og skipulagi verður skipt yfir í fyrirtæki án dísil- og bensínvéla.
EQS fólksbíllinn er flaggskipsgerð Mercedes.
Búist er við að bílaframleiðandinn muni tilkynna um áform um að kynna nýjan grunn fyrir viðbótar rafmagnsgerðir sem og eigin hugbúnaðarstýrikerfi árið 2024.
Áður hafði Daimler sagst aðeins búast við að tengitvinnbílar eða eingöngu rafknúnin ökutæki myndu nema meira en 50 prósent af fólksbílasölu í lok áratugarins.
Daimler neitaði að tjá sig þegar Automotive News Europe hafði samband við hann.
Audi sagði í síðasta mánuði að framleiðslu brennsluvéla verði hætt í byrjun næsta áratugar nema í Kína.
Jaguar vörumerkið hefur sagt að það verði rafknúið frá og með 2025. Volvo og Bentley hafa sagst búast við að verða eingöngu rafknúin vörumerki árið 2030. Ford hefur sagt að þeir muni aðeins selja fulla rafbíla í Evrópu árið 2030.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Ný 70 milljóna evra fjárfesting þýðir að Porsche á nú 24 prósent í Króatíska tæknifyrirtækinu...
Brotthvarf Porsche frá aðalkeppni alþjóðlegs þolkappaksturs í Le Mans var skammvinnt. Þeir ætla að snúa aftur á brautina árið 2023 með því að fara inn í LMDh flokk FIA...
Ekki myndi maður fyrir sitt litla líf hætta sér í umfjöllun um hvort kynið sé betra í því að stjórna ökutæki: karlar eða konur. Það er ekki umræða mér að skapi enda tek ég ekki þátt í henni. Eftir sem áður má auðvitað skemmta sér við að fylgjast með öðrum ræða þessi mál.
Ríkiskaup hefur, í kjölfar útboðs fyrir hönd lögregluembættanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum tekið lægsta tilboði Brimborgar um kaup á 17...