Gókart hefur sjaldan ef nokkurn tíma verið heitara fyrirbæri en það er nú í meðförum Bob Maddox eða „The Rocketman“ eins og hann er kallaður. Gókart með þotumótor? Er það eitthvað? Leyfum sérfræðingnum að svara því.
Bob Maddox eða „The Rocketman“ með sitt skegg og fínerí.
Áður en lengra er haldið má þó vekja athygli á þeirri merkilegu staðreynd að ótrúlega margir sérvitrir spekúlantar eru með mikið skegg. Hugsið bara hversu lítið má út af bregða í svona hita og tilraunum til að allt hreinlega fuðri upp! En þetta er nú bara smávægileg pæling um mikið skegg svona snemma á mánudagsmorgni.
The Rocketman, gjörið svo vel!
Aðrar umfjallanir
Í apríl árið 1969 var greint frá stórmerkilegum eltingarleik: Þrír lögreglubílar eltu Trabant í Vesturbænum og það í heilar tólf mínútur. „Er næsta furðulegt að manninum skuli hafa tekizt að aka þessari bíltegund á slíkum hraða en á eftir sagði hann að aðrir gætu ekki leikið það eftir sér.“
Það er oft stutt í druslustimpilinn. Ljótur getur orðið að druslu án þess að færa nokkur önnur rök fyrir því en að finnast hann ljótur...
Volvo FH16 750 með XXL húsi verður frumsýndur hjá Velti að Hádegismóum 8 í Árbæ fimmtudaginn 1. júlí milli kl. 13-17.
Hyundai Ioniq 5 með „e-corner“ getur snúið hjólunum 90 gráður og getur líka snúist í 360 gráður, ekið á ská og snýst eins og lyftari...