Sjálf er ég mikill „plötuspilari“. Það er að segja manneskja sem hefur gaman af að setja góða plötu á fóninn. Þó hef ég enn ekki gerst svo fræg að eiga bílaplötuspilara. Þeir urðu kannski ekkert svakalega vinsælir hér á landi en vissulega voru þeir til.
George Harrison brasar við spilarann
Virkuðu þokkalega
Mig minnir að pabbi hafi sagt að bílaplötuspilarinn hans hafi virkað ágætlega. Lítið hafi verið um hökt og nálarhopp, en hljómgæðin í græjunum verið fremur slök. Minnir mig.
Einhverja kagga var víst hægt að kaupa með innbyggðum spilurum og í Bandaríkjunum kom „Highway Hi-Fi“ spilarinn fyrstur og fékkst hann sem aukabúnaður t.d. Í 1956 árgerðum af ákveðnum gerðum Chrysler, Desoto, Dodge, og Plymouth.
„Highway Hi-Fi“ spilarinn
Annars var algengara að fólk keypti bílaplötuspilara sem var með innbyggðan hátalara eða sem tengdur var við græjur bílsins.
Athyglin oft á plötuspilaranum
Það er kannski ekkert undarlegt að athygli ökumanna hafi beinst að bílaplötuspilaranum því á 45 snúninga plötu voru nú yfirleitt aðeins tvö lög á hvorri hlið og því nóg að gera við að snúa plötum og skipta.
Auglýsing fyrir bílaplötuspilarann
Árið 1960 kom sniðugt tæki á markað: RCA Victrola sem raða mátti 14 plötum í og sá tækið um skemmtunina og bílstjórinn fylgdist með veginum.
Skjáskot af eBay
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
Tesla næstum tvöfaldaði sölu og framleiðslu á síðasta ári þrátt fyrir skort á íhlutum í birgðakeðjunni og útlit fyrir svipaða frammistöðu árið 2022 og eftir það.
Þessi 45, fyrsti sérstaki rafmagnsbíll Hyundai, hefur verið í prófunum á Nürburgring í Þýskalandi vegna undirbúnings...
Fyrstu fjórir rafbílar Volvo eru jeppar en forstjórinn Jim Rowan segir að aðrar gerðir gætu fylgt á eftir
Anonima Lombarda Fabbrica Automobili á ítölsku, eða „Bílaverksmiðjan í Langbarðalandi, almenningshlutafélag“, (skammstafað A.L.F.A.)...