Sumarhelgi nokkra 1993 var söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir gestur Michaels Jackson á búgarði hans Neverland. Einkabílstjóri Jackson sótti Önnu Mjöll heim til hennar í Los Angeles á hvítri limúsínu en á leiðinni á búgarðinn bilaði limmósínan. Ævintýrið er byrjað, lesendur góðir!
Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur lengi verið búsett í Bandaríkjunum.
Það var vinur Önnu Mjallar, Eddie Barber að nafni, sem bauð henni með í heimsóknina til Neverland, búgarðs Jackson. Heimboðið var til komið af því að Barber komst í úrslit í keppni MTV-sjónvarpsstöðvarinnar um besta tónlistarmyndbandið við lagið Who It Is eftir Jackson.
Íslenskur víkingur ýtti limúsínu á hraðbrautinni
Anna Mjöll, þá 23 ára, þáði boð vinar síns, Eddie Barber, með þökkum en hún sagði síðar að hún hefði á þeim tímapunkti ekki gert sér grein fyrir hversu sérstakt heimboðið var í raun og veru.
„Og klukkan þrjú á föstudegi flautaði hvít limúsína fyrir utan húsið hjá mér. Það tekur þrjá og hálfan klukkutíma að keyra heim til Michaels Jacksons frá heimili mínu. Þegar við vorum búin að keyra í eina klukkustund bilaði limúsínan á hraðbrautinni og var alveg stopp.“
Hvað gerir maður þá? Í þessum sérstöku aðstæðum, aftur í limúsínu eins frægasta tónlistarmanns veraldar – á leiðinni heim til hans? Já, hvað gerir maður? Anna Mjöll þurfti ekki að hugsa sig lengi um heldur gekk beint í það sem gera þurfti.
Mjög sennilegt er að þetta sé limúsínan sem Anna Mjöll Ólafsdóttir ýtti, vafalaust prúðbúin, á hraðbrautinni sumarið 1993. Lincoln Town Car árgerð 1988.
„Víkingseðlið braust þá út í mér og ég rauk út til að ýta bílnum í gang. Karlmennirnir komu út á eftir og öll reyndum við að ýta. Þetta var eiginlega svolítið fyndin byrjun á ævintýralegri helgi. En bíllinn fór ekki í gang svo að panta varð aðra limúsínu.“
Við andlát Jackson í júnílok árið 2009 var þessi limúsína á meðal bíla í eigu hans. Þetta er Rolls-Royce Silver Spur II
Þessi tiltekni bíll var kominn til uppboðshaldara í febrúar 2009, rétt eins og til stóð með allt bílasafn popparans á þeim tíma. Muni undirrituð þetta rétt þá átti Jackson í einhverju aurabasli og ætlaði að losa skotsilfur með því að selja allan bílaflotann.
Hins vegar hvarf hann skyndilega frá þeim áformum í apríl og ekkert varð af uppboðinu.
Bílaflotinn var nokkuð stór en þessi ljósmynd hér fyrir ofan fær að fylgja, því Jackson var nefnilega nokkuð fyrir limúsínur og átti fjórar slíkar þegar hann kvaddi.
Heimili popparans skoðað og hann fjarverandi
Til Neverland kom Anna Mjöll rétt fyrir kvöldmat á föstudeginum og í viðtalinu í DV lýsti hún hversu almennilegt starfsfólk Jackson hafi verið og tekið henni afar vel. Gestgjafinn sjálfur kom þó ekki fyrr en daginn eftir.
Frá búgarðinum Neverland, Skjáskot/YouTube
Að kvöldi föstudags fengu gestirnir að skoða íbúðarhús popparans sem var ævintýraheimur út af fyrir sig. Best er að Anna Mjöll „segi frá“ og vitna ég aftur í viðtalið:
Vildu horfa á bíómynd í Neverland
Í hádeginu á laugardeginum hittu þau Jackson og MTV-liðið. Verðlaunaafhending vegna tónlistarmyndbandsins fór fram og dagurinn leið svo í sælu ævintýralandsins. Gestir skoðuðu dýragarð Jacksons og fleira fram að kvöldmat.
„Eftir matinn vildu vinningshafarnir fara í kvikmyndahúsið hans [Jackson] og sjá Cliffhanger með Sylvester Stallone. Ég gat ekki hugsað mér að setjast inn í bíósal og horfa á kvikmynd. Ég fór því ein að þvælast meðan hinir fimm fóru í bíó,“ sagði hún og þar með var Anna Mjöll ein á ferð í kvöldmyrkrinu í sjálfu Hvergilandi (Neverland).
Alein í hraðskreiðustu klessubílunum
„Það var komið myrkur svo ég fékk mér golfbíl og keyrði út í tívólíið. Þar voru tveir menn aö vinna og öll tækin í gangi. Ég fór alein í öll tækin. Starfsmennirnir spurðu hvað ég vildi prófa næst og löbbuðu með mig um allt svæðið. Það var mjög skrítið að vera alein í tívólíi þetta kvöld. Þarna eru t.d. hraðskreiðustu klessubílar sem ég hef á ævinni prófað.“
Jackson á góðri stundu og alls ekki einn „á ferð“ eins og Anna Mjöll var þegar hún var gestkomandi á Neverland.
Rúntaði með Michael Jackson um Neverland í golfbíl
Eftir rallið í klessubílunum, þar sem hún var jú alein, fór Anna Mjöll inn í spilasal og lék billiard með krökkum sem þar voru. Skyndilega birtist Jackson sjálfur og gekk til Önnu Mjallar.
„Hann sagði: „Takk fyrir diskinn, hann er æðislegur, ég ætla að hlusta á hann aftur í kvöld.“ Ég gaf honum plötuna Jólaleg jól fyrr um daginn og hann var búinn að hlusta á hana.
Einkabílstjórinn og leiðsögumaðurinn Jackson
Þetta var sannarlega ævintýri sem bílar settu svip sinn á: Fyrst biluð limúsína sem okkar kona gerði heiðarlega víkingatilraun til að ýta í gang á hraðbrautinni, svo hraðskreiðustu klessubílar sem Anna Mjöll hafði prófað (og höfum í huga þá sérstöðu hennar að vera ein í „klessó“). Síðast en ekki síst ber að nefna bíltúr um flennistóra landareignina, á golfbíl, með leiðsögn og einkabílstjóra.
Viðtalið er mun lengra og má lesa það í heild inni á vefnum Tímarit.is eða með því að smella hér.
Fleira músíkalskt eða músíktengt:
Aðrar umfjallanir
Bílasýningar eru áhugaverður vettvangur fyrir bílaáhugamenn, og þar er oft hægt að sjá skemmtilega bíla, stundum bara hugmyndir...
Planið var að prufukeyra Akla Romeo-bílinn á Goodwood kappakstursbrautinni á Englandi eftir nokkrar vikur. Nú verður Carrozzeria...
PARIS - Mercedes-Benz heldur áfram að stækka rafbílaframboð sitt með EQE sportjeppanum sem mun keppa við BMW iX sem er nú...
Einn af styrkleikum Tesla, að sögn sumra sérfræðinga, er að þeir einbeita sér meira að tækni en framleiðslu bifreiða...