Eins og það sé ekki nógu erfitt að sjá út fyrir spoilernum þarna að framan (er sko bæði með að framan og aftan) heldur kviknar líka í og þá sést nú bara ekki neitt!
Ökumaðurinn slapp ómeiddur en þetta má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan. Skjáskot/YouTube
Leyfið mér að kynna mann sem ég þekki ekki neitt: Chris Rado. Hann er maður margra „spoilera“ (jú, ég veit að íslenska kvenkynsnafnorðið vindskeið er til en í dag má ég nota orðið spoiler) og virðist honum líða best mitt á milli tveggja slíkra: Einn að framan og annar að aftan.
Chris Rado hefur lítið verið í sviðsljósinu síðastliðinn áratug eða svo. Nú er hann meira í andlega ljósinu. Skjáskot/YouTube
Chris þessi Rado hefur sett ýmis met og slegið önnur á sínum 1200 - 1400 hestafla Scion en eitthvað virðist hann sjá og skilja sem mögum öðrum er hulið. Honum hefur í það minnsta tekist ýmislegt sem öðrum hefur ekki tekist. Og það á sínum framhjóladrifnu furðubílum.
Yfir á andlegu hliðina
Hann er fæddur árið 1975 í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum og er atvinnukappakstursnáungi. Eða var. Hann var afar virkur á árunum 1999-2012 og um afrek hans má m.a. lesa hér.
Eitthvað virðist hann hafa velt sér yfir á andlegu hliðina í lífinu og kannski var hraðinn á þeirri hlið slíkur að hann þurfti ekki lengur á bílnum með spoilerana að halda.
Í það minnsta þá er lítið af ökumanninum sjálfum að frétta hvað akstursíþróttirnar varðar og ofurbíllinn hans var til sölu í lok árs 2018 eins og lesa má um hér. En hver veit nema óvæntar upplýsingar komi fram í næstu grein um manninn sem áður var kenndur við spoilera...
Tengt efni:
Aðrar umfjallanir
Risastór flutningavél, hlekkjaður Ford Ranger Raptor og mikill hraði: Þetta er spennandi. Í splunkunýju myndbandi má sjá Ranger Raptor slíta sig lausan úr voðalegum hlekkjum. Bara eins og King Kong.
Mercedes-Benz ætlar að afhjúpa nýtt flaggskip sem hún gerir ráð fyrir að muni leiða rafhlöðusviðið á markaðnum og fylgja eftir því loforði...
Stellantis stefnir að því að tvöfalda framleiðslu á „nýja“ Fiat 500, söluhæsta fjöldamarkaðs rafhlöðurafbíl í Evrópu ef hann getur fengið nóg...
Hyundai umboðið Kauptúni 1 í Garðabæ frumsýnir á morgun, laugardag milli klukkan 12 og 16 nýjan og alveg breyttan Hyundai i10...