Nýtt ár, nýr bíll, nýtt keppnistímabil. Þetta er bara spennandi! Haas-liðið undir stjórn míns uppáhalds orðljóta karls, liðsstjórans Guenthers Steiner, skaut öllum öðrum keppnisliðunum ref fyrir rass og var fyrst allra til að kynna nýjan keppnisbíl.
Húmorinn á sínum stað og orðaforðinn sömuleiðis hjá hliðarsjálfi Steiners, samkvæmt mér fróðari mönnum, en þetta hliðarsjálf er býsna hnyttið. Enda þýðir útlenska orðið „banter“ (@BanterSteiner) að „gantast“ eða einfaldlega „fíflalæti“.
Bíllinn, VF-22 lítur, vel út og vonum bara að hann verði ekki tilefni fúkyrðaflaums frá meistara Steiner.
Simone Resta ásamt þeim Ayao Komatsu og Guenther Steiner (honum sjálfum en ekki hliðarsjálfinu Banter sem á heima á Twitter). Mynd/Haas
Tæknistjóri liðsins Simone Resta útskýrir í allmörgum orðum tæknilegar áskoranir sem þurti að mæta við smíði bílsins og lesa má hér en ljóst er að nýr bíll var heldur betur það sem þetta lið þurfti á að halda því sá gamli var ekki alveg málið – enda ekkert sniðugt að keppa í Formúlu 1 á tækjum sem helst eiga heima á Þjóðminjasafninu.
Mynd/Twitter@HaasF1Team
Hvað um það! Áður en hér skrifast einhver dómsdagsþvæla er rétt að líta á myndir (tölvugerðar en myndir engu að síður) af bílnum,
Mynd/Twitter@HaasF1Team
Mynd/Twitter@HaasF1Team
Hér er gamli tertuspaðinn, bara svona til samanburðar. Mynd/Twitter@HaasF1Team
Svo gætu margir haft áhuga á speki spekinganna hjá The Race sem áðan birtu myndband undir yfirskriftinni: Hvað frumsýning Haas segir okkur um keppnisbílana 2022.
Tengdar greinar:
Aðrar umfjallanir
Það er dálítið sport að vera fyrsta Formúluliðið sem afhjúpar bíl komandi keppnistímabils. Já, það er í raun svolítil keppni þó að ekki sé veittur neinn bikar eða derhúfa í verðlaun.
Sókn Kia á markaði rafknúinna ökutækja sem eingöngu nota rafhlöður hefur verið aukin með staðfestingu sjö rafmagnsgerða...
Nýi Porsche Cayenne GTS er með lægri stöðu til að bæta meðhöndlun í akstri en 4,0 lítra tveggja túrbó V8 er með 454 hestöfl og 620Nm togi...
Sjálf er ég mikill „plötuspilari“. Það er að segja manneskja sem hefur gaman af að setja góða plötu á fóninn. Þó hef ég enn ekki gerst svo fræg að eiga bílaplötuspilara. Þeir urðu kannski ekkert svakalega vinsælir hér á landi en vissulega voru þeir til.