Nýr Porsche Cayenne GTS kemur með 454 hestafla vél
Nýi Porsche Cayenne GTS er með lægri stöðu til að bæta meðhöndlun í akstri en 4,0 lítra tveggja túrbó V8 er með 454 hestöfl og 620Nm togi
Sem fyrr smellur GTS gerðin í bilið milli Cayenne S og Cayenne Turbo, með nýjum undirvagni og fjöðrunaríhlutum til að aðgreina hann á virkan hátt.
Stærsta breytingin er þó drifrás bílsins. Þó að fyrri Cayenne GTS notaði túrbó 3,6 lítra tveggja túrbó V6, þá er þessi nýji GTS með 4,0 lítra tvískipta túrbó V8. Afl er 454 hö - aukning um 20 hö – meðan talan um togið læðist upp um 20 Nm, að hámarki 620 Nm.
Porsche fullyrðir að með valfrjálsa „Sport Chrono“ pakka Cayenne GTS nái bíllinn hröðun frá 0-100 km/klst á 4,5 sekúndum og fari í topphraða 277 km/klst. Drif er sent til fjögurra hjóla í gegnum Porsche Tiptronic S átta gíra sjálfskiptingu.
Frekari valmöguleikar undirvagnsins eru kolefnis-keramikhemlar, aðlöguð þriggja hólfa loftfjöðrun, beygjur á afturhjólum og „Porsche Dynamic Chassis Control“ stöðugleikastýring, til að halda bílnum enn frekar í skefjum.
Sjónrænt er að allir GTS gerðir eru með Sport Design pakka sem staðalbúnað, þar á meðal glans-svarta klæðningu að utan, glans svartar 21 tommu felgur og dekkt LED-aðal- og afturljós.
Valfrjálst sportútblásturskerfi er með einnig tvö, miðsvæðis sporöskjulaga púströr - nokkuð sem er eingöngu fyrir GTS í bili. Að innan fær nýja gerðin Alcantara snyrtingu í loftklæðningu, miðju sætis, armpúða í miðju og hurðum
Aðrar umfjallanir
Núna er vetrartímabilið senn að renna sitt skeið og eftir nokkra daga stöndum við sem höfum verið að nota sérstök vetrardekk frammi fyrir því að skipta um og setja sumardekkin undir.
Þegar farið er um netheima má finna endalausar frásagnir um gamla bíla og hvernig þeir urðu til. Sumir bílar setja svip sinn á bílasöguna aðrir fóru langt umfram það til að...
Þá er komið að því að kynna betur bílinn sem frumsýndur var í beinni útsendingu í gær: Skoda Enyaq Coupe. Rafbíllinn sá er með drægni allt að 545 kílómetra.
19. júlí sl voru liðin 53 ár frá fyrstu komu manna til tunglsins. “The Eagle has landed” var tilkynningin sem geimfararnir sendu til Jarðar til að tilkynna komu sína á áfangastað...