Það er dálítið sport að vera fyrsta Formúluliðið sem afhjúpar bíl komandi keppnistímabils. Já, það er í raun svolítil keppni þó að ekki sé veittur neinn bikar eða derhúfa í verðlaun.
Og enn gæti eitthvert annað lið orðið fyrst til, ef fleiri vilja vera „memm“ í þessari æsispennandi keppni liðanna utan brautar.
Þann 22. febrúar næstkomandi (22.02.22) verður bíll Aston Martin, AMR22, afhjúpaður í beinu vefstreymi en þann 18. febrúar mun Mercedes tosa lakið af sínum bíl. Mercedes-AMG F1 W13 E Performance ætlar sá að heita, eða bara W13.
Kannski maður ætti að leggja hausinn í bleyti og svo í hveiti ef færi gefst á að koma spurningum að. Kemur í ljós!
Aðrar umfjallanir
Núna er svartasta skammdegið komið og allir sem eru á ferð í umferðinni þurfa að gera allt sem þeir geta til að vera sýnilegir.
Það kemur fram á vef Automotive News Europe í dag að Hyundai Motor er að setja af stað alþjóðlegt rafmagns vörumerki sem notar Ioniq nafnið frá núverandi...
Sjálfstýring, ProPilot, CoPilot. Bílaframleiðendur hafa mörg nöfn á nýjum kerfum sem gera handfrjálsan akstur mögulegan, en engir öryggis- eða...
Hætturnar leynast víða og hér er hættan í formi tónlistar. Í frétt sem birtist fyrir 42 árum í Vikunni kemur nefnilega fram að vísindamenn hafi komist að því að lífhættulegt geti reynst að „kveikja á stereo-segulbandinu“ í bílnum.