Max Verstappen, sjálfur heimsmeistarinn í Formúlu 1, segist ekki eins góður á skautum og margir Hollendingar munu víst vera. Enda er hann jú heimsmeistari í Formúlu en ekki listdansi á skautum!
Ljósmyndir/Joerg Mitter/Red Bull Content Pool
Tengist þetta undarlega umræðuefni því að hann og Austurríkismaðurinn Franz Zorn öttu „kappi“ á ísilögðu vatni: Verstappen á Formúlubíl og Zorn á mótorhjóli. Það er rúm vika síðan þessi ís-sprettur fór fram á GP Ice Race hringnum við flugvöllinn í Zell am See, skammt frá Salzburg í Austurríki en Red Bull birti myndefnið í gær.
Það eru frábærir ljósmyndarar sem taka myndir fyrir Red Bull. Joerg Mitter/Red Bull Content Pool
Þetta var gert til að fagna komandi keppnisári og sennilega líka til að vekja athygli á akstursíþróttum, Red Bull og alls konar öðru í leiðinni.
Áður í snjó en aldrei á svelli
Þó svo að Verstappen hafi ekið Formúlubíl í snjó uppi í fjöllum (hlekkur hér fyrir neðan) þá var þetta í fyrsta skipti sem hann ók slíkum bíl á ís. Og jú, hann staðfesti það sem við vissum nú fyrir: „Þetta var frekar sleipt.“
Var bíllinn á hressilega negldum Pirellidekkjum og í fyrsta skipti voru græjurnar (hjálmur og bíll) merktar með tölunni 1 en ekki 33.
Það getur verið sniðugt að „hita upp“ á ísnum en nú styttist í að ballið byrji. Formúla 1 í allri sinni dýrð og drama. 23 keppnir eru framundan en fyrst þarf að gera eitt og annað:
Þann 9. febrúar verður RB18 bíllinn afhjúpaður og verður gaman að fylgjast með því. Prófanir fara svo fram í Barcelona dagana 23.-25. febrúar og í Bahrain 10.-12. mars. En fyrsta umferð tímabilsins fer fram þar, í Bahrain, dagana 18-20 mars.
Hér er stutt en sniðugt viðtal þar sem Verstappen segir nokkur orð um ís-sprettinn, númeraskiptin á keppnisbílnum úr 33 í 1 og fleira. Þetta er rúm mínúta en aðalsnilldin er myndbandið fyrir neðan þetta og það er brakandi nýtt!
Annað efni um Verstappen eftir sama höfund:
Aðrar umfjallanir
Á síðum á borð við Amazon og eBay er hægt að kaupa aragrúa bílaaukahluta. Sumir þeirra eiga að létta bílstjórum lífið en geta í raun stytt þeim aldur, ef svo leiðinlega má komast að orði.
Þeir sem fylgdust með rallinu í Finnlandi um helgina þurftu oft að góna upp í loftið, rétt eins og þeir væru staddir á flugsýningu. „Jumpin“ eða stökkin á sérleiðunum geta verið alveg hreint mögnuð
Margir hér á landi muna eflaust eftir Hyundai H-1 eða Starex, sem var vinsæll bíll fyrir stórar fjölskyldur, bíll með aldrifi og ágætri veghæð sem...
Einn er sá staður sem margir bílaframleiðendur horfa hýru auga til, og þá einkum með hraða í huga, en það er kappakstursbrautin í Nürburgring í Þýskalandi