Akureyringurinn Þór Þormar er engum líkur. Eða jú annars; hann er nauðalíkur tvíburabróður sínum. Nema hvað! Hann er áhugaverður karakter, alltaf brosandi og mikill keppnismaður. Þór er tvöfaldur Íslandsmeistari í torfæru og í fyrradag setti hann heimsmet.
Hvar finnur maður Þór Þormar?
Þegar Þór Þormar er ekki á fleygiferð á torfærubíl þá gæti hann verið í skúrnum að útbúa eitthvert tryllitækið eða á fleygiferð á einhverju öðru ökutæki en torfærubíl. Ef hvorugt á við er reyndar mjög líklegt að hann sé að gera eitthvað sniðugt og skemmtilegt með krökkunum sínum.
Þarna er hann! Tekið á Akureyri 2019. Ljósmynd/M.Brand
Nú ef ekkert af þessu á við og hann finnst hvergi á landi þá er hann úti á sjó. Í vinnunni. Þór er fyrsti stýrimaður á skipinu Vilhelm Þorsteinssyni EA.
Það er nú ekkert undarlegt að maður finni hvergi mynd þar sem sést almennilega framan í Þór Þormar. Hann er alltaf inni í bíl þegar ég tek myndir af honum.
Ófáar ljósmyndir hefur undirrituð tekið af ökumanninnum slynga í hinum ýmsu torfærukeppnum. Hann er bráðskemmtilegur keppandi því maðurinn virðist alltaf vera í góðu skapi! Þegar verr gengur brosir hann minna, en brosir þó og segir iðulega eitthvað hnyttið.
Þrefaldur Íslandsmeistari í tveimur greinum
Það var því skemmtilegt að frétta að Vilhelm Þorsteinsson hefði slegið glóðvolgt Íslandsmet í fyrradag þegar landað var með fullfermi af loðnu í Fuglafirði í Færeyjum. „Glóðvolgt“ skrifa ég því aðeins nokkrum klukkustundum áður hafði systurskipið Börkur NK slegið Íslandsmet í lönduðum loðnuafla þegar 3,409 tonnum var landað á Seyðisfirði um helgina.
Það er, eins og við landkrabbarnir gætum orðað það, „rosalega mikið“.
Vilhelm Þorsteinsson EA við bryggju í Fuglafirði í fyrradag. Ljósmynd/Samherji.is
Þá kom Vilhelm Þorsteinsson með 3,448 tonn og þar með var Íslandsmetið ekki lengur Barkar. Ekki nóg með að Vilhelm Þorsteinsson hafi slegið Íslandsmetið heldur er þetta líka heimsmet í lönduðum loðnuafla!
Tekur langa stund að bíða eftir verðlaununum
Þegar menn standa sig vel í torfæru og komast á verðlaunapall er verðlaunaafhending alla jafna stuttu eftir að keppni lýkur. Það tók hins vegar vegar rúmar tuttugu klukkustundir að dæla úr Vilhelm Þorsteinssyni í Fuglafirði. Segir á vef útgerðarinnar að Færeyingar hafi verið ánægðir með gæði aflans og fituinnihald. Í Færeyjum er aflanum dælt beinustu leið til vinnslu en ekki í tanka eins og oftast er gert hér á landi en meira um það hér.
Listdans á framdekkjum. Ljósmynd/M. Brand
Að vonum var Þór Þormar kátur í gær (og örugglega brosandi ef ég þekki hann rétt) þegar við vorum í sambandi við hann og það sama má segja um aðra skipverja á Vilhelmi Þorsteinssyni sem eiga núna í sameiningu bæði Íslandsmet og heimsmet.
Það styttist svo í torfæruna og þá verða metin slegin eins og lög gera ráð fyrir. Fyrsta torfærukeppnin árið 2022 verður dagana 7. og 8. maí á Hellu en skoða má keppnisdagatal AKÍS hér.
Þó svo að sjaldnast sé lognmolla í kringum Þór Þormar þá var logn þegar þessi mynd var tekin sumarið 2019. Við slíkar aðstæður getur verið erfitt að taka myndir og mikilvægt að hafa munninn lokaðan í rykinu! Ljósmynd/M. Brand
Hver veit nema blaðamaður Bílabloggs rifji þá upp gamla takta og „hristi“ nokkrar myndir út úr myndavélinni.
Annað nýlegt sem tengist torfærunni:
Maður horfir á íslenska torfæru í fyrsta sinn
Laddi auglýsir torfæruna
Svo er eitt og annað að finna hjá okkur í fréttaflokknum Mótorsport
Aðrar umfjallanir
Toyota á Íslandi fær glæsilega viðbót í vörulínuna í janúar 2021 þegar Toyota Highlander verður kynntur í fyrsta sinn í V-Evrópu. Þessi bíll hefur notið mikilla vinsælda...
Nýr Mercedes EQS hefur verið opinberaður. Það má hugsa sér þennan nýja lúxusbíl sem rafútgáfu af nýjasta S-Class, eða sem valkost við bíla eins og...
Stundum þyrmir yfir mann og göturnar virðast fullar af ökutækjum sem stjórnað er af vanhæfum ökumönnum. Hér eru tvær sögur sem varpa ljósi á hvernig sumir öðlast ökuréttindi þvert á öll lögmál og svo hið gagnstæða: Þegar ósýnileg öfl virðast grípa í taumana og koma í veg fyrir stórslys.
Hyundai hefur sent frá sér opinberar myndir sem sýna væntanlegan i20 N „súpermini“ við prófanir ásamt WRC keppnisbílnum og frumgerð RM19...