„Við kynnum átta akstursstillingar – fjórar fyrir veginn og fjórar fyrir vegleysur.“ Einhvern veginn svona útleggst kynning rafbílaframleiðandans Rivian sem í dag frumsýndi nýtt myndband. Enn eitt myndbandið þar sem rafpallbíllinn Rivian R1T virðist býsna spennandi ökutæki.
Myndbandið er tekið upp í Arizona í Bandaríkjunum og þar fá ökumennirnir Billy Jang og Kristi Nishihira að gera eitt og annað skemmtilegt á þessari 835 hestafla útgáfu pallbílsins rafmagnaða.
Nei, þarna tók ég ekki nógu ákveðið til orða. Leyfið mér að umorða þetta ögn:
Setjið veltibúr í kvikindið og hleypið mér út! Á þessum myndi ég sko vilja mæta í næsta jepparall.
Allt virðist mögulegt á þessum merkilega og úthugsaða bíl. Rivian R1T. Vonandi hafið þið, lesendur góðir, eins gaman af meðfylgjandi myndbandi og undirrituð:
Fleira sem tengist Rivian:
Aðrar umfjallanir
BEIJING – Bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla sagði á þriðjudag að þau hefðu komið sér upp gagnagrunni til að safna upplýsingum úr bifreiðum sem þau framleiða og eru...
Bílablaðamaðurinn Greg Rasa sem skrifar fyrir Autoblog birtir tvö myndbönd af nánast óbreyttum Bronco sem ekið er um Rubicon Trail, 35 kílómetra...
Heimildarmyndin um Michael Schumacher hefur heldur betur fengið hörðustu jálka til að fella tár og hjólreiðakappa til að vilja leggja reiðhjólinu og setjast upp í formúlubíl.
Ferrari, MG Motor, Lotus, Lamborghini, Bentley, Maserati, Suzuki, Jeep, Audi og Toyota voru meðal 12 vörumerkja sem juku sölu í Evrópu í nóvember á...