606 hestafla tryllitæki; nýjasti bíllinn frá Gordon Murray... Já, kannski fleiri komi af fjöllum svona eftir jól? Þetta er það sem kallast „supercar“ eða ofurbíll og hann er önnur gerðin sem smíðuð er af Gordon Murray Automotive. 3,9 l. V-12, 606 hö, 1000 kíló og kostar...

Já, þarna fékk ég nefnilega sjokkið: 1.85 milljónir dollara kostar kvikindið. 245 milljónir króna? Getur það verið?

Murray tengja einhverjir við McLaren F1 en hann á heiðurinn af þeim bíl. Þrjátíu árum síðar, 2020, smíðaði Murray ofurbílinn GMA T.50 og nú er GMA T.33 mættur.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is