Maður sem kallaður er meistari í ökuleikni hefur valdið áhorfendum heilabrotum en að undanförnu hafa birtst myndbönd þar sem hann sýnir hvernig snúa skal við þar sem pláss er lítið. Meira en milljón áhorf eru á þetta daglega en af hverju?
Það sem einkennir myndböndin (sem virðast öll mjög keimlík) er að undir þeim er leikin afar dramatísk tónlist, það er mikil spenna og voðalega fær bílstjóri, gríðarlegt áhorf en…já en til hvers er hann að þessu?
Já! Það gleymdist að nefna að hann væri líka kraftlyftingamaður.
Það er einmitt spurning mjög margra áhorfenda sem skrifa athugasemdir undir myndböndin. Til hvers? Tökum nýjasta myndband sem dæmi. Á fjórum dögum eru áhorf hátt í 2.000.000. Það er ekkert smá!
Rúmlega milljón á dag
En svo er það næsta myndband sem er mánaðargamalt. Mínútulangt myndband og áhorfin komin yfir 33.000.000. Milljón á dag og rúmlega það! Sem vill horfa á mann bakka. Jæja, lesendur góðir. Er þetta mál málanna? Bakka, snúa við, fá einhvern til að taka það upp og henda á YouTube…
Hér eru tvö sýnishorn af þessu milljónamyndefni. Hvað segið þið um þetta?
Aðrar umfjallanir
Volvo mun breyta því hvernig fyrirtækið nefnir bíla sína og hefja það með nýju rafknúnu flaggskipi sem verður frumsýnt á næsta ári...
Í ágúst voru 952 fólks- og sendibílar nýskráðir, tæplega 61% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári þegar nýskráðir...
Á kynningu á IAA Transportation í Þýskalandi í vikunni, hefur kínverski rafbílaframleiðandinn Build Your Dreams (BYD) deilt nýrri rafbílatækni...
Ef það er eitthvað sem við eigum nóg af hér á landi eru það holur. Holur sem við viljum ekki aka í en ökum því miður oft í, enda eru þær á vegum landsins. En við erum ekki ein um að vera rík í þessum skilningi. Holur í vegum eru víða!