Shelby Hall heitir sú sem ekur í þessu brakandi nýja eyðimerkurmyndbandi um Ford Bronco Raptor. Það brakar þó ekki í bílnum – síður en svo! Hann hljómar hreint ekki illa þarna í Johnson Valley í Kaliforníu. Ford Bronco™ Raptor is Built Wild™ er slagorðið sem Ford notar í kynningu á þessu undratóli.
En best að hafa ekki fleiri orð um það því við ætllum að fjalla nánar um Bronco Raptor hér á eftir. Hér er „forrétturinn“ sem er líka eins konar tóndæmi.
Fjögur hundruð hestafla forréttur, gjörið svo vel!
Aðrar umfjallanir
Til stóð að frumsýna nýja sportbílinn, IS frá Lexus árgerð 2021 í dag en Lexus hefur tekið þá ákvörðun að fresta stafrænu...
Ekki gerir maður ráð fyrir að allir hafi áhuga á ljósmyndun en flestum þykir þó gaman að skoða gamlar myndir. Svo ekki sé nú talað um ef á þeim eru bílar! Hér eru myndir frá Bandaríkjunum. Myndirnar eru teknar á sjöunda og áttunda áratugnum og það við bílalúgur Fotomat!
Við heyrum stöðugt fréttir af nýjum bílum frá Asíu sem eru að koma á Evrópumarkað, einkum nýjum rafbílum. Hongqi E-H59 er einn þeirra og hann er kominn til landsins!
Volkswagen hefur opinberað fyrstu skissurnar af nýjasta ID-bílnum, fólksbílnum ID.Aero, sem er nýr keppinautur Tesla Model 3.