Hugmynd að torfærubíl frá Lexus
- Harðgerður nýr Lexus NX PHEV Offroad Concept kynntur í Tókýó
- Torfæruútgáfa Lexus af NX er með stórum dekkjum, sterkum torfæru álfelgum og nokkrum torfæruviðbótum
Lexus fór dálítið út fyrir rammann í Tokyo Auto Show í Tókýó í ár: Kom fram með ROV torfærubuggybílinn og þessa torfæruútgáfu af fræga malbiks NX crossover bílnum sínum. Hann er kallaður NX PHEV Offroad Concept og var hannaður til að sýna hvernig Lexus getur haldið jafnvægi á milli akstursgleðinnar og loftslagsmetnaðarins.
Bensínvélin er studd af 18,1kWh rafhlöðupakka og 53 hestafla rafmótor sem festur er á afturhjólin og gefur bílnum fjórhjóladrif.
Til að breyta staðlaða NX í Offroad Concept byrjaði Lexus á því að skipta út venjulegum felgum og dekkjum fyrir öflugri 17 tommu torfæru álfelgur, skóaðar BF Goodrich al-terrain dekkjum. Fyrirtækið bætti einnig við nýrri mattsvartri þakgrind og burðarkörfu.
Aðrar lagfæringar í útliti eru meðal annars nýtt járnoxíð lakk, sólarvarnarborði frá Lexus yfir framrúðuna, gljásvartir gluggarammar og mattsvört áferð á grilli, hurðarhandfönguu og merkjum bílsins.
Aksturshæð bílsins hefur einnig verið hækkuð örlítið, til að veita auka rými fyrir torfærudekkin. Upphækkaður grunnurinn gerir Offroad Concept einnig kleift að komast yfir hindranir sem líklega myndu hamla akstri venjulegu útgáfunnar.
Lexus hefur ekki staðfest rafknúna eiginleika jeppans, en við gerum ráð fyrir að þyngri álfelgur og torfæruhjólbarðar muni draga úr skilvirkni aflrásarinnar.
Til samanburðar getur venjulegur NX farið 65 km á raforku eingöngu, á allt að 135 km/klst hraða.
(Frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Nokkrum vikum eftir að bensín V8 Defender náðist á mynd við prófanir nálægt aðalstöðvum Land Rover við Gaydon, hefur ljósmyndari...
Miklar umræður hafa skapast á samfélagsmiðlum um fyrirhugaðar lækkanir á umferðarhraða í Reykjavík, á þeim götum sem borgin hefur yfir að segja...
Hann braut ekki rúður eða afritaði lykla þessi bílaþjófur. Nei, þessi var í vinnunni og ætlaði að „taka vinnuna með sér heim“ eða hluta af henni. Hann vann nefnilega á bílaleigunni Enterprise og hélt að enginn tæki eftir því þótt nokkur ökutæki hyrfu…
Það var greinilegt að margir höfðu áhuga á því að skoða hvað væri í boði þegar ÍSBAND, umboðsaðili Jeep og RAM...