Nýtt stýri í stað ok-stýrisins í Tesla Model S?
Í Ameríku hafa margir tekið Model S vel en eru minna hrifnir af ok-stýrinu. Hér er lausnin
Þegar Tesla kom fram með ok-stýrið í Model S varð stýrið, eðli máls samkvæmt, ekki lengur hringlaga heldur meira í áttina að flugvélarstýri. Urðu þá sumir hrifnir en aðrir hundóánægðir.
Eins og sést hér að ofan er stýrið ekki í raun svo ýkja frábrugðið, bara búið að bæta við hringnum að ofan sem kemur sem viðbót og er síðan vafin inn í annað hvort leður eða koltrefjar.
T Sportline býður einnig upp á ok úr mismunandi efnum.
En því miður, samkvæmt vef Electrek, er ekki beint einfalt „plug-and-play“ að skipta um stýri.
Ef Tesla eigandinn er með „pakka“ fyrir kalt veður tapar hann hitavirkni stýrishjólsins.
Útskiptisstýrishjólið vantar líka gírvalsbúnaðinn og stefnuljósastangirnar sem eru á Model S sem eru á staðalgerð stýrishjólsins.
(byggt á Electrek og Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Það er ágætt að heyra hvað þeim sem lifa og hrærast í heimi bíla finnst best og verst af því sem þeir skoða. Mat Watson hjá CarWOW er virkilega mikill bílakarl og hér er samantekt hans á því flottasta og ljótasta á markaði 2022.
Bifreiðaframleiðandinn INEOS Automotive afhjúpaði í dag ytri hönnun Grenadier, væntanlegs jeppa fyrirtækisins fyrir heiminn...
Vatnslásinn eða „hitastillirinn“ er einn af meginþáttum kælikerfis bílvélarinnar, sem stjórnar flæði kælivökva milli vatnskassans og vélarinnar.
Þegar einn milljarðamæringur sýnir bílasafni annars milla áhuga þá er gaman. Auðug systkin frá Abu Dhabi eru nú í heimsókn hjá indverskum félaga sem vildi endilega sýna þeim bílana sína og fóru þau með einkaþotu hans frá Dubai til Indlands.