Sérstakur, en ferlega svalur! Hann heitir Dodge A100 Custom Sportsman og þetta hressilega eintak er eitt af 7.273 eintökum ársins 1970 af þeirri gerð. A100 pallbílarnir voru framleiddir frá 1964-1970.
A100 er sannarlega ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar minnst er á amerískan pallbíl en eins og sjá má er búið að gera bílinn upp og sennilega enginn aukvisi sem vann verkið. Í það minnsta var það síðasti eigandi sem vann verkið og var hann víst fagmaður mikill, að því er fram kemur á sölusíðu bílsins.
Allar upprunalegar bækur og pappírar fylgja bílnum og hvert einasta handtak sem unnið hefur verið hefur verið skráð í bók sem fylgir að sjálfsögðu.
Upprunalegu Slant 6 vélinni var skipt út fyrir 340 V8 frá 1972 og þessu fylgja einhverjar voða fínar upplýsingar með alls konar tölum sem undirrituð treystir sér bara hreinlega ekki til að túlka en hér er hlekkur á alla dýrðina.
Fínn litur á bókinni en þetta er samt ekki litabók.
Aðrar umfjallanir
Núna þegar kórónavírus er aðeins farinn að sleppa af okkur klónum þá lifnar yfir bílaiðnaðinum...
Hafir þú ekið um stórmerkilegar götur San Francisco er líklegt að þú getir rifjað upp hljóðið þegar ekið er yfir spor hinna margfrægu kapalvagna borgarinnar. Þykja beygjurnar og brekkurnar mun sérstæðari en „íslenskar“ hraðahindranir og öll okkar hringtorg til samans.
Það var miðsumars árið 1983 að ég fékk hið langþráða bílpróf. Það gekk hins vegar ekki andskotalaust að mínu mati. Á þeim tíma lá við að ungir ökumenn biðu yfir nóttinna við...
Með aukinni rafbílavæðingu má sjá að hönnun hins hefðbundna fólksbíls er að breytast – og það hressilega! EV9 er gott dæmi um það en bílnum bregður fyrir í myndum og myndböndum frá framleiðandanum.