Það getur verið erfitt að aka með opnar dyr á bílnum. Sérstaklega á mikilli ferð; t.d. í ralli. Það virðist þó hafa gefið ökumanninum Henk Lategan byr undir báða vængi því þannig ók hann til sigurs í dag í Dakar rallinu sem fram fer í Sádi-Arabíu.
Mitt ráð til þeirra, sem eltir eru af ógæfunni, er einfaldlega að stinga hana af með því að aka nógu hratt! En að öllu gamni slepptu þá var Lategan harla kátur þegar hann vann í dag. Og til að fyrirbyggja allan misskilning þá keppir Lategan ekki í opnum flokki heldur almennum bílaflokki.
Svona er staðan í bílaflokki eftir daginn:
Og í heildina er þetta staðan:
Hér má skoða stöðuna í öllum flokkum.
Það er alltaf gaman að sjá áhorfendur í góðum gír, en þessi kom og heilsaði upp á keppanda í mótorhjólaflokki, og ekki nóg með það því hann fékk mynd af þeim saman og komst í „In-car“ myndband dagsins. Ef vel fer mun þetta bros bræða heiminn og gera hann að betri stað:
Skjáskot/YouTube
Örlítið „In-car“ frá keppnisdeginum:
Aðrar umfjallanir
Volkswagen Group er í viðræðum um að eignast franska bílaleigufyrirtækið Europcar Mobility Group í samkomulagi sem myndi gera þýska bifreiðaframleiðandanum...
Núna er vetrartímabilið senn að renna sitt skeið og eftir nokkra daga stöndum við sem höfum verið að nota sérstök vetrardekk frammi fyrir því að skipta um og setja sumardekkin undir.
Nýr alrafmagnaður Land Rover Defender á leiðinni með um 480 km drægni...