Nissan Qashqai bestur í sínum flokki að mati Euro NCAP
Euro NCAP kynnti í vikunni niðurstöður sínar úr árekstrarprófunum nýliðins árs, 2021, þar sem fram kemur hvaða bílar stóðu sig best á árinu í sínum flokki (Best in class).
Alls prófaði Euro NCAP 33 nýja bíla á árinu og fengu 22 fyrstu einkunn eða 5 stjörnur fyrir framúrskarandi öryggi, þar sem sérstaklega var tekið til akstursaðstoðarbúnaðar Qashqai (safety assist systems) sem fékk 95% einkunn. Það er hæsta einkunn sem Euro NCAP gaf á síðasta ári.
Aðeins einn annar bíll fékk sömu einkunn í þeim prófunarflokki á árinu, en það var Subaru Outback.
BL kynnti í september nýjustu kynslóð þessa vinsæla sportjeppa sem hefur verið sá mest seldi í sínum flokki í Evrópu um langt skeið.
Jepplingurinn er eins og áður boðinn með vali um framhjóladrif eða fjórhjóladrif, en þar má segja að samanburðinum ljúki við fyrri kynslóðir bílsins sem kom fyrst á markað árið 2007.
Aðrar umfjallanir
Við getum keypt pylsur, kókómjólk og annað snarl í gegnum bílalúgu hér á landi, og jú, apótekin maður! Nokkur apótek bjóða upp á afgreiðslu gegnum bílalúgu og það er algjör snilld! En banki með bílalúgu? Nei, ekki á Íslandi. Ekki í dag alla vega.
PARIS - Peugeot mun auka framboð sitt í flokki minni bíla með kynningu á 408, crossover í Coupe-stíl sem verður sýndur í lok júní...
MILAN - Fiat Chrysler er að setja í gang verkefni í sínum sögulega ítalska heimabæ, Tórínó til að láta bíla sína með tengitvinnbúnaði fara sjálfkrafa...
Jæja, kaninn er kominn á kaf í rafmagnið. Það er ekki annað hægt að segja þegar Ford kynnir F-150 með rafhlöðu og rafmagnsmótorum. F línan hefur verið ein sú söluhæsta í Bandaríkjunum um árabil...