Fátt er leiðinlegra en leiðinlegar auglýsingar. Jú, kannski að vaska upp. Og… jújú, það er fleira, en skítt með það! Hér er nefnilega ætlunin að hrósa fyrir skemmtilegar auglýsingar því það er svo skemmtilegt! AB Varahlutir mega eiga það að auglýsingarnar þeirra eru meiriháttar!
„AB varahlutir eru með áríðandi tilkynningu til almennings. Hægt er að sjá alla mikilvægustu punktana á upplýsingafundi fyrirtækisins. Höldum áfram að berjast!“
Aðrar umfjallanir
Volvo Cars hverfur frá dísilknúinni fortíð sinni og heldur inn í rafmagnaða framtíð, að því að fram kemur í frétt á Automotive News Europe í dag...
Samkvæmt vefsíðu Automotive News Europe mun næsta flaggskip Volvo – sem tekur við af XC90 – mögulega bera nafn fyrstu konunnar úr norrænu goðafræðinni.
Á kynningu á IAA Transportation í Þýskalandi í vikunni, hefur kínverski rafbílaframleiðandinn Build Your Dreams (BYD) deilt nýrri rafbílatækni...
Eflaust eru ekkert margir sem leggja við hlustir þegar minnst er á Lancia. Lancia er hins vegar gamalkunnugt vörumerki